Leita í fréttum mbl.is

Velkominn til Íslands félagi Húgó Chavez

rev7Félagi Húgó Chavez er maður fólksins, hinna snauðu og kúgaðra. Ódeigur býður hann gjörspilltu auðvaldi heimsins byrginn af aðdáunarverðri einbeittni og hugrekki. Ef einhver ærlegur snefill af mennsku væri í ríkisstjórn Íslands væri hún fyrir löngu búin að leita eftir aðstoð félaga Chavez gegn því glæpagengi auðvaldsins sem íslenskur almenningur á í höggi við um þessar mundir. En því miður er ríkisstjórn Íslands skipuð brjóstumkennanlegum kerfisþrælum, sem eru samdauna auðvaldinu og gamla Íslandi, - að Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra, einum undanskildum.  

Lifi byltingin í Venúsúela !!!

Lifi félagi Húgó Chaves !!!


mbl.is Neituðu að sjónvarpa ræðu forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Heyr heyr. Ferfalt Húrra fyrir Chaves.

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 14:50

2 identicon

Já... endilega vera með stjórnvöld sem loka á tjáningafrelsi, kúga andstæðinga sína, banna gerð athugasemda, eyða almannafé frekar í að kaupa stuðning morðingja, nauðgara og þjófa í stað þess að tryggja velferð fólks. Þetta er sko rétta andlit sósíalismans!

Ef þú hefðir vitað eitthvað um stöðu mála í Venezúela værir þú ekki að tjá þig með þessum hætti. Það er mannkynninu öllu til háborinnar skammar að við í 2010 ennþá þurfum að eiga við menn eins og Chavez. Enn fremur er það óásættanlegt að menn slái sig á brjósti og sýna stollt yfir því hversu illa Hugo Chavez fer með almenning í landi sínu.

Ef Venezúela virkilega er fyrirmynd félagshyggju 21. aldar er það sannað að sósíalismi er ekkert annað en illmennska af verstu gerð.

Gunnlaugur Snær Ólafsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 15:05

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Sósíalisminn er leið mannsins að siðuðu samfélagi. Kapítalisminn er hins vegar sprottinn af ágirnd og illmennsku enda liggja hundruðir og aftur hundruðir af saklausu fólki í valnum vegna þessa djöfullega kerfis.

Félagi Húgó Chavez er eingöngu að berjast fyrir velferð fólk í landi sínu, enda hefur hann fólkið með sér. Að sjálfsögðu skrúfar hann fyrir drullkompur hundingja auðvaldisins, sem hugsa um það eitt að komast yfir auðlindir landsins, nema hvað.

Guðlaugur Snær Ólafsson þarf eins og alltof margir aðrir að komast í meðferð við mestu plágu mannkynsins, auðvaldssýkinni.

Jóhannes Ragnarsson, 24.1.2010 kl. 15:24

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Kapitalismi" er orð sem sósíalistar fundu upp til að nota yfir það að eiga verksmiðjurnar.

Nú þegar Hugó, maður fólksins á allar verksmiðjurnar, þá er hann kapítalistinn.  Þá er orðið svo að dreyfing auðs var meiri áður en hann tók við völdum - sem er mjög kaldhæðnislegt.

Ásgrímur Hartmannsson, 24.1.2010 kl. 15:33

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég þakka Ásgrími Hartmannssyni fyrir afar merkilegt innlegg í umræðuna. Ekki kæmi mér á óvart þó hann héldi því fram í fullri alvöru að sauðkindin sé fiskur, eða að inni í jörðinni sé annar hnöttur sem sé mikið stærri en sá ytri.

Jóhannes Ragnarsson, 24.1.2010 kl. 15:41

6 identicon

Eins og ég sagði fyrir nokkru. Chavez hefur engu breytt fyrir almenning í Venezúela.

Ég býst fastlega með því að þú Jóhannes hefur aldrei farið til Venezúela, kynnst fólki þaðan eða með nokkrum öðrum hætti kynnt þér málefnin sem þar liggja fyrir.

Mér er alveg sama um einhverja hugmyndafræðilegan samanburð á kapítalisma og sósíalisma. Hinsvegar hef ég áhuga á því að ræða stefnu Hugo Chavez.

Síðan Chavez tók við völdum hefur orðið víðtækari fátækt, enn kostar grundvallar heilbrigðisþjónusta morðfjár fyrir almenning, það hefur orðið vatnsskortur og rafmagnsskortur. Á meðan almúgin líður nauð hefur Chavez eytt hundruðum ef ekki milljörðum dala í að fjármagna kosningabaráttur manna í öðrum löndum.

Einnig hefur gamla auðvaldsstéttin verið skipt út með stétt "Chavistas". Valdir stuðningsmenn Chavez eru settir í æðstu stöður og er spillingin svo víðtæk að erfitt er að átta sig á því.

Chavez lækkaði gengi Bolivarsins um helming um daginn og er spáð meira en 100% verðbólgu fyrir lok ársins. Auðvitað verða það fátæklingarnir sem líða fyrir það.

Chavez hefur bannað mönnum að gagnrýna forseta, ríkisstjórn og hæstarétt. Sem sagt er almenningi nánast útilokað að taka þátt í stjórnmálum. Einnig hefur verið sannað að hann fremur víðtæk kosninga svindl.

Chavez hefur ekki stuðning fólksins, ef svo væri mundu ekki vera svona mörg pólítísk morð vera framin.

Öryggi á götum í Caraccas hefur snar versnað frá því að hann tók við völdum sem er afleyðing þess að hann hefur greinilega ekki áhuga á að bæta hag fólks.

Að lokum staðfesti Chavez að hann er gjörsamlega bilaður á geði þegar hann nýlega sagði að jarðskjálftin á Haití var orsökuð af nýju vopni Bandaríkjana sem getur skapað jarðskjálfta.

Gunnlaugur Snær Ólafsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 16:23

7 identicon

Bentu mér á þessa sönnun fyrir kosningasvindli. Ég hef leitað að slíku og ekki fundið.

Hann hefur tapað tvennum af fimm kosningum sem bæta átti við vald hans.

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 17:57

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú hefur ekki hugmynd um hvað þú er að þvæla Gunnlaugur Snær. Þú getur eflaust lapið upp endalausa auðvaldslygar um félaga Chavez, en eftir stendur, að hann er lýðræðislega kjörinn forseti Venesúela og hann hefur alþýðuna með sér, enda er félagi Chavez það ljós í myrkri Suður-Ameríku sem heimsvaldasinnar auðvaldsins hræðast. 

Jóhannes Ragnarsson, 24.1.2010 kl. 18:25

9 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Þar hittirðu naglann á höfuðið Félagi Jóhannes.

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 18:59

10 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ha ha ha ha ...

Frábært blogg.

Níels A. Ársælsson., 24.1.2010 kl. 20:25

11 identicon

Jóhannes, þú hefur greinilega ekki möguleika til þess að ræða málin málefnalega... og svarar engum athugasemdum mínum nema með því að halda því fram að þetta séu eintómar lygar. Þú ert sem sagt að halda því fram að hinir margir ágætu félagar mínir sem búa í Venezúela eru lygarar sem þú hefur engar forsendur fyrir að gera. Slíkt er ekki bara óviðunandi heldur líka toppurinn af vitleysu, sem sýnir bara hversu ómerkilegur málflutningur þinn er.

Ágúst, núna er það þannig að í lands kosningum er rafræn kosning þar sem öll atkvæði fara í gegnum auka tölvukerfi (sértalningu) áður en atkvæðin eru send á endanlegan áfangastað þar sem réttmæt talning fer fram. Þetta hefur meðal annars stofnun Jimmy Carters sýnt fram á.

Það sem er verst með að fylgjast með málflutningi þeirra sem greinilega eru aðdáendur Chavez, er að menn geta svo blint fylgt honum án þess að gera nokkrar athugasemdir. Slíkt er hreint og beint hættulegt, greinilega vilja menn ekkert læra af sögunni og greinilega vilja menn ekki að heilbrigð umræða sé til um þá sem vald hafa. Hver er að skapa ólýðræði og hvetja til misbeytingu valds?

Gunnlaugur Snær Ólafsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 23:25

12 identicon

Gunnlaugur, þú færir ekki fram nein rök um að hann hafi svindlað né sannanir. Komdu með bæði þá er ég ánægður og mun endurskoða mitt mat á Chavez. Því skv. því sem ég hef skoðað í sambandi við hann þá er hann lýðræðislega kjörinn fimm og veistu hvað, hann er duglegri að hafa þjóðaratkvæðagreiðslur en ríki á vesturlöndunum, þ.m.t. Ísland.

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 00:17

13 identicon

http://vcrisis.com/index.php?content=letters/200409080559

http://www.eluniversal.com/2004/09/08/en_pol_art_08A490829.shtml

Svo er spurning hvort þjóðaratkvæðagreiðslur um hvort skal gera mann að eilífðarforseta séu í eðli sínu lýðræðislegar...

Gunnlaugur Snær Ólafsson (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 08:49

14 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Gaurinn er popúlisti, hann spilar á fólið sitt eins og píanó á meðan hann getur.  Sem er auðveldara á meðan hann stjórnar öllum fjölmiðlunum.

Það hjálpar að þetta er fátækt land sem hefur töluvert verið undir hælnum á stærri löndum og jafnvel fyrirtækjum árum saman.  Sem sagt, gróðrarstía fyrir niðurrifsstarfsemi.

Ásgrímur Hartmannsson, 25.1.2010 kl. 15:02

15 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Niðurrifsstarfsemi??? Hvað áttu við?

Jóhannes Ragnarsson, 25.1.2010 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband