Leita í fréttum mbl.is

Andvaraleysi og mistök eða einbeittur brotavilji?

finnur2.jpgHvort voru það andvaraleysi og mistök eða einbeittur brotavilji Sjálfstæðisflokks og Framasóknarflokks, sem orsökuðu Hrunið mikla og varð þjóðinni að falli í fleiri en einum skilningi?

Það þýrir akkúrat ekkert fyrir strengjabrúðuna Sigmund Davíð að umla um afsakanir og ætlast til að þjóðin fyrirgefi Framsóknarflokknum meðan flokksmenn láta undir höfuð leggjast að víkja Halldóri Ásgrímssyni úr flokknum ásamt Finni Ingólfssyni, Valgerði Sverrisdóttur, Alfreð Þorsteinssyni, kaupfélagsstjórnanum á Sauðárkróki og Siv Friðleifsdóttur, svo nokkur eintök úr haughúsi Framsóknarmaddömunnar séu nefnd.

Enn fremur verður Framsóknarflokkurinn að berjast fyrir því að þjóðinni verði skilað ríkiseignum sem framsóknarmenn nældu sér í á misjafnlega þokkafullan hátt meðan þeir voru í ríkisstjórn á árunum 1995-2007, auk fiskeiðiauðlindarinnar sem Framsóknarflokkurinn hafði á ýmsan hátt forgöngu um að stela af þjóðinni. 


mbl.is Framsóknarflokkur biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Það er öllum ljóst sem vilja vita, að einbeittur brotavilji var það sem knúði framsóknarflokkinn áfram undir stjórn stórþjófanna Halldórs og Finns.

Hamarinn, 24.4.2010 kl. 15:18

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ef verk og viðskilnaður Framsóknar og Sjálfstæðisflokks eru andvaraleysi, ættum við að þakka fyrir að fá ekki yfir okkur mistök, sukk og svínarí með einbeittum brotavilja. Það yrði ljótan.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.4.2010 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband