Leita í fréttum mbl.is

Iðar öll af kæti og hoppar á öðrum fæti

xd9Sko kerlinguna hana Hönnu Birnu, hún leynir aldeilis á sér. Og á eiginmann, ekki hafði mig órað fyrir því. Sá er nú heldur en ekki lukkunnar pamfíll, og þar að auki kominn með kosnigarrétt. Betra getur það varla orðið.

En mikið lifandis ósköp stóð Hanna Birna sig vel í kosningaþættinum í sjónvarpinu í gær. Hún bókstaflega iðaði af kæti og var svo innilega ópólitísk að hrein unun var á að horfa; vildi meðal annars að allir flokkarnir, sem fá kjörna borgarfulltrúa, myndi einn allsherjar meirihluta eftir kosningar, að sjálfsögðu meða hana sem borgarstjóra, og minnihlutinn verði eitt stórt núll.

Já, það getur oft verið gaman að vera fjörug hrunstelpa með meistaragráðu í davíðsku af kontórnum hans Kjartans Gunnarssonar í Valhöll.


mbl.is Borgarstjóri á kjörstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

Já það er sláandi óvænt að hún eigi mann en hann minnir svolítið á Gísla Martein, það er lookið sem þau laðast að

halkatla, 29.5.2010 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband