Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarvilluljósið í vinstrimannagærunni

auðvaldJú, Steingrími J. hefur tekist í alltof langan tíma fela sinn svavarsvædda framsóknarkapítalisma undir sauðargæru rótækrar vinstrimennsku, sósíalisma. Það er reyndar nokkuð langt síðan ég þóttist sjá að þessi þistilfjarðarframmari væri ekki allur þar sem hann væri séður, það væri eitthvað meir en lítið bogið við gripinn. Það var t.d. dálítið eftirtektarvert í aðdraganda stofnunar VG hvað Steingrími virtist umhugað að draga að sér óánægða framsóknarmenn, auk þess að gera bandalag við kvennalistakvinnur sem þá höfðu nýlokið við að gjöreyða Kvennalistanum sáluga. En þegar þessi sérkennilegi flokksformaður tók til við, með dyggri aðstoð gömlu flokkseigendanna úr Alþýðubandalaginu ásamt dekurdýrum af undanrennukynslóðinni og búrtíkum eins og Árna Þór, að flæma verkalýðssinnuðu sósíalistana í útlegð í flokknum, hefðu öll ljós átt að kvikna hjá almennum flokksmönnum. En því miður hafa alltof margir elt framsóknarvilluljós Steingríms, Svavar og Álfheiðar alltof lengi og til stórskaða fyrir raunverulega vinstrihreyfingu á Íslandi. Það þýðir ekkert fyrir Steingrím J. að æpa, framaní flokksráð VG og þjóðina: - Sjáið hvað ég er sterkur! þegar fyrir liggur að hann einkum notað sína merkilegu krafta til að viðhalda samtryggingu stjórnmálaflokkanna og auðvaldsins í landinu.

Karl MarxÞað er ljóst að vinstri armurinn í VG verður að taka til sinna ráða, ef ekki á verr að fara, að segja skilið við gamla flokkseigendafélagið úr Alþýðubandalaginu, framsóknarvillingana, dekurdýrin, búrtíkurnar og undanrennuskoffínin og stofna alvöru vinstriflokk, flokk sem byggir á sósíalisma, verkalýðsbaráttu, þjóðfrelsi; flokk sem meinar það sem hann segir og liggur ekki uppíloft í samtryggingarsvaði kapítalismans eins og meðvitundarlaus hundur. 


mbl.is „Já það tókst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Sæll Jói.

Þetta er alveg rétt hjá þér.  VG ætti að losa sig við SJS og það hið fyrsta!

Kv. SV

Sigurjón, 26.6.2010 kl. 00:45

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Hvað getur "alvöru vinstriflokkur" fundið til að banna sem Nágrími hefur ekki dottið í hug?

Tjáningarfrelsi?

Réttinn til að mótmæla?

Nei, það borgar sig ekki að reysa Kommúnistaflokkinn úr gröfinni... lítið bara til Rússlands.... þar er allt í rugli.

Ef menn vilja búa í landi með öfgasinnum og kommum legg ég til að' þeir hinir sömu flytji til Kúbu.... þar er þó allavega heitt!

Óskar Guðmundsson, 26.6.2010 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband