Leita í fréttum mbl.is

Sósíalísk bylting er svarið

Rauður hnefiÞað hefur heldur enginn búist við því að labbakúturinn Guðmundur Steingrímsson hefði sannfæringu fyrir einu eða neinu, einfaldlega af því að hann hefur, og hefur aldrei haft, sannfæringu fyrir nokkrum sköpuðum hlut, enda alinn upp miðjum fjóshaugnum við sjálft Framsóknarfjósið.

Því miður hefur liði af sama kalíberi og Gvendur Steingríms fjölgað óhugnarlega á Alþingi: heilu og hálfu flokkarnir eru undirlagðir fénaði sem á enga köllun aðra en að þjóna eigin athyglissýki og eigin skítalykt.

Það er varla til mikils mælst, að óska eftir því við vísindasamfélagið (ef það er þá ekki ofsetið Gvendum Steingrímssonum) að fundið verði upp lyf, helst bóluefni, við hinu sannfæringarlausa spillingareðli sem tröllriðið hefur öllum stjórnmálum á Íslandi um hríð.

En best væri samt að gera sósíalíska byltingu því þar með myndi undanrennuliðið, Gvendarnir, Katrínarnar og Tryggvarnir Þór, hverfa sjálkrafa til annarra starfa, það er að segja ef hægt er að nota það til einhverra nýtilegra starfa en að éta cócópuffs..


mbl.is Hefur ekki sannfæringu fyrir ákærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Afætur þjóðfélagsins sem þú nefnir eru ekki nýtilegar til neins nema að þrífa klósett á Litla Hrauni.

Hamarinn, 27.9.2010 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband