Leita í fréttum mbl.is

Glæpasamtök á flótta

heim3Það er engu logið um það, að Sjálfstæðisflokkurinn er magnað fyrirbæri, og dregur meira dám af glæpasamtökum en stjórnmálaflokki í þeim skilningi sem fólk almennt leggur í orðið stjórnmálaflokkur. Djöfullegur tryllingur meðlima þessara óhrjálegu samtaka útaf málshöfðununni á hendur Gjeirs Haaarde er með þeim endemum að fólk er agndofa. Þessir svokölluðu Sjálfstæðismenn víla ekki fyrir sér að ljúga því upp aftur og aftur, að fyrrnefnd málshöfðun sé eingöngu pólitísk aðför að einstaklingnum Gjeir Haaarde, rétt eins og ekkert hrun hafi orðið og halda því meira að segja fram að Gjeir þessi, ásamt ráðherrum sínum, hafi ekkert vitað hvað í vændum var fyrr en svona um það bil viku áður en efnahagskerfið lagðist á hliðina. Ég veit vel að Gjeir og aðrir í innsta hring Sjálfstæðisflokksins vissu mætavel hvað verða vildi árið 2006 og gerðu nákvæmlega ekkert til stöðva þá þróun; það var ekki fyrr en fólkið á götunni rak þetta pípuhattahyski útúr Stjórnarráðinu að það lét af völdum.

Það er hinsvegar gleðilegt að gjörspillt íhaldslið sé tekið uppá því að hlaupa á dyr á virðulegum fundum eins og púkafans undan guðsorði þegar góðir menn eins og Ögmundur Jónasson taka til máls. Það saknar enginn nærveru þess.


mbl.is „Ekki með neina sleggjudóma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: einhvur

Alveg er það magnað fyrirbæri, Byltingin sem vinstri grænir orkestreruðu hér á landi með auðsveipu kóandi samspillingarliðinu. Nú ganga þeir um blóðugir upp að öxlum, Atli, Ömmi, Steingrímur og hinir öfga-sósíalistarnir, með engin svör eða áætlanir fyrir heimilin í landi eða nokkra framtíð aðra en fleiri gapastokka og pólitísk réttarhöld.

Og þessu hossar þú, Jóhannes! Ja lítið leggst þá fyrir Ólafsvíking.

einhvur, 30.9.2010 kl. 20:19

2 Smámynd: Hamarinn

Mikið djöfull bítur sannleikurinn sjálfstæðishyskið fast í afturendann, enda emja þeir og veina hver öðrum hærra og ausa saklausa borgara aur sínum til að fela ræpuna sem vellur úr afturendanum þegar sannleikurinn er sagður.

Hamarinn, 30.9.2010 kl. 21:09

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það vill svo illa til, ,,einhvur" að það er nánast útilokað að gera stórar áætlanir fyrir heimilin í landinu vegna þess að það er AGS sem ræður förinni. ASG er ekki hér til að aðstoða heimili eða verkalýð, hans hlutverk er að ganga erinda kapítalismans við að innheimta skuldir fyrir fjármagnseigendur. Eit af síðustu verkum Gjeirs Haaarde sem forsætisráðherra var að leita á náðir ASG vegna sinna eigin afglapa og þeirra sem með honum störfuðu við stjórn landsins á árunum 1991 til 2009.

Stærstu mistök núverandi ríkisstjórnar eru að vera sífellt að reyna að semja sig frá öllum hlutum við ASG, atvinnurekendaauðvaldið og Sjálfstæðisflokkinn og hans kommissara útum allt kerfið. Ríkisstjórnin á að hætta þessu samninga- og samtrygginarbulli við auðvaldið, hverju nafni sem það nefnist, það skilar engu. Þess í stað á ríkisstjórnin að einhenda sér í að berjast við hinn marghöfða þurs kapítalismans og spillingarinnar; þann slag myndi ríkisstjórnin vinna nokkuð auðveldlega því hún hefði mikin meirihluta landsmanna með sér við það verkefni.  

Jóhannes Ragnarsson, 30.9.2010 kl. 21:20

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér urðu á meinleg mistök áðan með því að svara þessum ,,einvurjum." Ég hef nefnilega ekki lagt það í vana minn að svara fólki sem að einhverjum ástæðum er svo huglaust að þora ekki að skrifa undir eigin nafni.

En andskoti var fréttin í Kastljósinu í kvöld um niðurfellingu skulda hjá fjölskyldufyrirtæki Halldórs Ásgrímssonar uppá tvo og hálfan milljarð. Ætli sé ekki best að kenna núverandi ríkisstjórn um þann gjörning, eða hvað?

Jóhannes Ragnarsson, 30.9.2010 kl. 21:45

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Sveinn Elías, þeir eru ansi aumir þessa dagana í blá-endagörninni vesaling sjálfstæðisrotturnar.

Jóhannes Ragnarsson, 30.9.2010 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband