Leita í fréttum mbl.is

Jóhanna stendur sig mjög vel

Mikið þó andskoti tekur Jóhanna okkar Sigurðardóttir sig vel út með Merkelkerlingunni þýsku á myndinni sem tekin var af þeim á leiðtogafundi glæpasamtakanna NATO. Þá er yfirlýsing íslenska forsætisráðherrans ekkert slor, en samkvæmt frétt mbl.is gerði Jóhönnugarmurinn okkar sér hægt um vik lýsti yfir sérstakri ánægju með aukna áherslu á pólitísk samráð og eflingu borgaralegra uppbyggingar innan bandalagsins. Reyndar hef ég enga trú á að Jóhanna hafi nokkra hugmynd um hvað það er sem vekur henni svo gífurlega ánægju varðandi ,,pólitísk samráð og eflingu borgaralegrar uppbyggingar" hjá glæpafélagsskapnum. Hinsvegar eru Merkelkerlingin og Jóhanna Sig gegnheilar íhaldsmublur, sem passa uppá fyrir sína rassa, að auðvaldið og burgeisastéttin haldi sínum völdum og forréttindum gagnvart verkafólki og öreigum.   
mbl.is Jóhanna ánægð með aukið samráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband