Leita í fréttum mbl.is

Ég er alfarið á móti Rögnu í forsetaembættið og færi fyrir því gild rök.

gu6_1055266.jpgÉg er gjörsamlega alfarið á móti því að Ragna Árnadóttir verði gerð að forseta Íslands. Hún var dubbuð upp til ráðherra fyrir ekki allöngu og stóð sig með slíkum endemum, að Jóhanna og Steingrímur sáu sig tilneydd til að fjarlægja hana með valdi úr dómsmálaráðuneytinu; þau urðu hreinlega að leggja á hana hendur og draga hana eins og villta ótemju á milli sín útá stétt. Meira að segja úti á stéttinni lét Ragna ekki staðar numið og beit Jóhönnu aftan í annan kálfann svo hún var draghölt í margar vikur á eftir. Ég tek fólki var við að skemmta skrattanum með því að gæla við hugmyndinu um að gera Rögnu að forseta Íslands.

Aftur á móti er mín bjargfasta skoðun, að Ísleningar eigi ekki að hika við að kjósa Gunnar I. Birgisson, fyrrum borgarstjóra í Kópavogi, sem nlsta forseta íslenska lýðveldisins. Það er sko maður sem kann sitt fag og er ennfremur þeim mikilvæga kosti búinn að hafa háþróaðan heila milli eyrnanna meðan aðrir verða að láta sér nægja kvarnir eða örlítin taugahnút í kinnbeinsholunum.


mbl.is Flestir vildu Rögnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að þetta sé hugsanlega á misskilningi byggt.  Ég veit ekki betur en var tillögulega sátt við að hætta sem ráðherra.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 22.1.2011 kl. 12:34

2 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Sennilega grín grein hjá þér.

Allavega tekur engin mark á henni...og þér sennilega ekki, eftir þetta pár. :p

Birgir Örn Guðjónsson, 22.1.2011 kl. 13:19

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ha? ... misskilnigi ? Hvaða misskilnigi ? Ég kannast ekki við neinn misskilning varðandi þetta mál.

Svo skil ég ekki Birgi Örn að halda að ég sé að grínast með svona mál.

Svo get ég ennfremur sagt þér, Birgir Örn, að þar er heilmikið mark tekið á þessari grein minni, sem þýðir að mikið mark er á mér tekið.

Jóhannes Ragnarsson, 22.1.2011 kl. 13:47

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér með Rögnu, en það er ekki af baráttu hennar til að halda sætinu Heldur tel ég að hún sé of leiðitöm og trú ráðamanna, hún myndi ALDREI neita að skrifa undir hvað svo sem kæmi frá ríkisstjórninni.  Hún yrði því bara puntudúkka eins og fleiri forsetar, þangað til Ólafur Ragnar virkilega virkjaði embættið, sem andstæðingar hans geta ekki fyrirgefið honum.  Því vona ég að meðan þessir rósturtímar eru, þá verði hann forseti, því meðan hann situr er hann svo sannarlega bremsa á ráðríki ríkisstjórna.

Einhver var að nefna Stefán Jón Hafstein, það er sennilega gæluverkefnið hjá Samfylkingunni að fá sinn mann þar inn, mann sem er vitað mál að muni bara þjóna sínum og ekkert annað.   Hrollur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 16:33

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Já það væri ekki slæm hugmynd að fá Rögnu á Bessastaði. Hún er vönduð kona og heiðvirð, ekkert fyrir það gefin að trana sér fram og það væri ágætis tilbreyting að fá normal manneskju í þetta embætti.

Baldur Hermannsson, 22.1.2011 kl. 19:55

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú getur sennilega alveg eins fengið Barnie í forstetastólinn, sæt en gerir eins og henni er ætlað. Fer sennilega vel í fjórflokkinn, því þeir vilja bara vaða yfir allt og alla.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 20:07

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef ekki næst samstaða um Gunnar I. Birgisson í forsetaembættið, sem mér þykir harðla ólíklegt, þá ber að leita til Ólínu Þorvarðar eða Hanezar Hólmsteins Gissurarsonar.

Jóhannes Ragnarsson, 22.1.2011 kl. 22:03

8 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

BJÖRKU GUÐMUNDSDÓTTUR í forsetastólinn..!!!!!

(Nei, nei, ég sagði bara si svona).  Ég var bara að hræða hann Baldur  félaga minn Hermansson dálítið kvikindislega  -  smá grín - hehehe.  

Með góðri kveðju, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 22.1.2011 kl. 22:26

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Björk er svo sem áættanlegur kostur ef í harðbakkann slær, en aðeins með því skilyrði að pabbi hennar komi aldrei inn fyrir dyr á Bessastöðum.

Jóhannes Ragnarsson, 22.1.2011 kl. 22:31

10 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Jóhannes: Hvað finnst þér svo sem um pabba hennar.  Þetta er stofukommúnisti eins og allt forystulið VG, ég hélt að þeir væru þér að skapi?

OK.  Verum vinir og semjum um ÁLFHEIÐI INGADÓTTUR  sem næsta forseta lýðveldisins.   

Hehe, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 22.1.2011 kl. 23:00

11 Smámynd: Baldur Hermannsson

Álfheiður ..... it´s a deal.

Baldur Hermannsson, 22.1.2011 kl. 23:05

12 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Að nefna nafn Álfheiðar Ingadóttur inná mínu bloggi jafnast á við landráð eða stríðsyfirlýsingu.

Jóhannes Ragnarsson, 22.1.2011 kl. 23:14

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hana nú, hvaða geðvonska er þetta eiginlega á laugardagskvöldi ..... ég veit ekki betur en þetta sé vonardís drauma þinna og þú hafir hangið dyggilega í pilsinu hennar undanfarin kjörtímabil.

Baldur Hermannsson, 22.1.2011 kl. 23:24

14 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Baldur....!  sona, vertu nú solítið góur við hann Jóhannes.  Hann er í sárum og veit ekki hvað hann á að hugsa....   

Kv, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 24.1.2011 kl. 21:02

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hýenur veiða í hópum.  En eru samt á einhvern hátt aumkvunarverðar, enda njóta þær ekki virðingar.  Þar sem talað er um suma einstaklinga sem hýenur vegna framkomu sinnar.  Taki það til sín hver sem vill hér. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2011 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband