Leita í fréttum mbl.is

Þá er best að asninn fylgi eyrunum

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Það er ekki rétt hjá Ólínu Þorvarðardóttur, að Jón Bjarnason hafi sagt ríkisstjórnarflokkunum stríð á hendur. Það vill nefnilega svo skemmtilega til, að í báðum ríkisstjórnarflokkunum eru þingmenn sem vilja litlar sem engar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu; meint stríð beinist þá eingöngu gegn þeim sem vilja gagngerar breytingar á kvótakerfinu.

Hinu er ekki að neita, að nefndin hans Jóns hefur fært stefnuna talsvert nær kvótasinnunum og LÍÚ. Enda er nefndin þannig skipuð, að óhugsandi er að hún hefði burði, vilja eða getu til annars en að nálgast útgerðaraðalinn verulega.

Nú, ef Jón Bjarnason verður að segja af sér, væri farsælast að asninn fylgdi eyrunum og hrunráðherrarnir Jóhanna og Össur segðu af sér líka. Því þó staða Jóns sé ekki beinlínis góð í augnablikinu, þá er staða hrunráðherranna enn verri því ráðherradómur þeirra er þjóðinni til skammar og hrein ögrun við alþýðu manna.

 


mbl.is Hlýtur að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sammála þessu.

  Ég þykist vita að Jón Bjarnason sé vandaður maður og ekki síst þess vegna þykir mér miður að hann skuli vera svo hægfara að hann geti ekki verið samferða öðru réttsýnu fólki.

Sigurður Þórðarson, 27.11.2011 kl. 23:11

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sammála.

Rauða Ljónið, 27.11.2011 kl. 23:58

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þessu Jóhannes. Fiskveiðistjórnunarkerfinu verður ekki bylt nema koma fjórflokknum frá.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.11.2011 kl. 10:11

4 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Jón og Golíat

Jón Bjarnason er að berjast við sjálft ESB sem vill með öllum tiltækum ráðum koma honum út úr landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneytinu, Þjónar ESB hér á Íslandi Samfylkingin vaka eins og hrægammur yfir öllum athöfnum Jóns Bjarnasonar, með þeim eina tilgangi að koma honum frá störfum. Þeir vita sem er að Jón Bjarnason leyfir enga ESB aðlögun í sínu ráðuneyti. Jón Bjarnason er ekki landráðamaður, hann og Ögmundur Jónasson gegna sínum embættum með það að leiðarljósi að fara eftir landslögum.

Sjálfur forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir talaði málum ESB í Kastljósviðtali þann 29 október sl. þar var hún spurð um skuldakreppu ESB og það stóð ekki á viðbrögðum hennar þegar hún steytti hnefanum og talaði um að "Við" munum koma okkur útúr þessu, Hún virkilega sagði VIÐ (í ESB) þarf frekari vitnana við? ( undarlegt má teljast að ekki sé hægt að nálgast þetta fræga Kastljósviðtal á vef RÚV)

Guðrún Sæmundsdóttir, 28.11.2011 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband