Leita í fréttum mbl.is

Glæpagengi Hrunsins heldur allsherjarsamkundu

davi_6_897641.jpgÞað er engum vafa undirorpið að glapasamtökin sem kalla sig Sjálfstæðisflokk ætla að taka upp þráðinn sem frá var horfið þegar þau hrökkluðust frá með skít og skömm eftir Hrunið.
Það á að halda áfram á braut frjálshyggjustefnu og stjórna með hótunum, ógn og þöggum, eins og Davíðstímanum og halda áfram að brjóta velferðarkerfið til grunna, einkavæða það í hendur frjálshyggjuúlfana, sem bíða með blóðugan skoltinn eftir að fá að fénýta rústirnar af velferðarkerfinu.

Það versta er að svoköllu ,,hreina vinstristjórn", sem kallar sig ,,norræna velferðarstjórn" hefur afrekað það eitt að endurreisa Gamla Ísland uppí hendurnar á auðvaldsglæpalýðinn, enda skjóta hrunkvöðlar fjármálaumsvifa Hrunsins nær daglega upp kollinum, brosandi út að eyrum og rífandi kjaft, eins og selurinn sem saut upp höfði sínu í skreiðarskemmunni á Fróða í fróðaárundrunum, sællar minningar.
mbl.is Best borgið utan Evrópusambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Eins og Geir sagði Guð hjálpi okkur og ég bæti við Drottin fyrirgef þú þeim sem kjósa þennan flokk því þau vita ekki hvað þau gjöra.

Sigurður Haraldsson, 21.2.2013 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband