Leita í fréttum mbl.is

Haltur leiðir blindan - útí Kópavogslæk

coco_1055073.jpgEkki veitir víst af að einhver leiði lista sjálfstæðismanna í Kópavogi, því sá listi riðar mjög til falls í því ógurlega gjörningaveðri sem Gunnar I. Birgisson háyfirborgarstjóri Kópavogs hefur magnað upp þar um slóðir. En að láta Manna litla cocopuffsdreng leiða listann atarna minnir um allt á þegar haltur leiðir blindan. Og sennilega mun endirinn verða sá, að halti leiðarinn mun skjögra með þann blinda niður að Kópavogslæk þar sem öll hersingin fer sér að voða í læknum; í kjölfarið mun háyfirborgarstjórninn hlægja kuldalega og svo hátt að heyrist uppá Akranes og suðrá Rosmhvalanes.

Já, það er fremur óskemmtilegt fyrir veslings sjálfstæðismennina í Kópavogi að þurfa að neyðast til að bjóða fram jafn dvergvaxin framboðslista. En þeir geta, sem betur fer, kosið Óla Góða, sem leiðir lista VG, en Óli Góði er sem kunnugt er ágætastur hægrimaður í Kópavogi og þó víðar æri leitað. Það er því semsagt ekki fokið í öll skjól fyrir sjálfstæðismenn í þessu guðsvolaða bæjarfélagi, þrátt fyrir að listi þeirra sé í pervisalegra lagi og öldungis ómögulegt fyrir sómakæra íhaldsgelti að kjósa hann.
mbl.is Ármann leiðir listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband