Leita í fréttum mbl.is

Söfnuður trúvilltra, trúlausra vantrúarmanna

jes_1233336.jpgLaukrétt hjá Karli byskubbi. Laukrétt.

Á síðustu árum höfum vér í auknum mæli orðið vör við hin harðlífu ofstækisrassaköst hinna trúlausu, vantrúuðu sem svo sannarlega eru þjáðir af skítsófrenískri trúvilltu. Annan daginn vaða trúvillingarnir fram í froðufellandi guðlasti gegn kirkju og krinum dómi, en árla næsta dags eru þeir orðnir æstir stuðningsmenn þess að reisa mosku á áberandi stað í Reykjavík. Það fer víst ekki á milli mála, að einstaklingar sem svo haga sér, eru illa haldnir af trúvillu og líkast til geðkrabba í ofanálag.

Einn trúvilltur, trúlaus vantrúarmaður, sem slegið hefur um sig með að hafa Guð, Krist og Máríu mey opinberlega að háði og spotti, var staðinn að verki þar sem hann lá blindfullur á bæn fyrir framan kristslíkneski. Þegar af honum rann, bar hann fyrir sig að hann hefði ekki séð kristslíkneskið og ekkert um það vitað og hann hafi heldur ekki verið að biðjast fyrir heldur bölva móður sinni fyrir að hafa læst hann úti. Þessi náungi hefur nú verið rekinn úr hinum siðmenntaða söfnuði trúvilltra, trúlausra vantrúarmanna.
mbl.is Guðleysið líka ofstækisfullt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband