Leita í fréttum mbl.is

Og pestin af honum ætlaði alla lifandi að drepa

spenn2.jpgÞað er semsagt ein allsherjar svívirðileg móðgun við sómakæra borgara Íslands að verið sé að vafsast með málefni hrundólgana fyrir dómstólum. Þessum undirförula og gráðuga lýð átti að vera búið smala saman fyrir langalöngu og flytja uppá öræfi til geymslu innan gaddavírs; eða vista kvikindin eins og höfuðsóttarrollur í einhverjum hólma eða skeri á Breiðafirði. Að láta Sérstakan Saksóknara ergja sig á að eiga við undanbrögð og útúrsnúninga auðvirðilegra kríminala er svo gaga og gúgú að engu tali tekur.

Þó tekur útyfir allan þjófabálk að það skuli vera siðlausir lögmannsþorparar, vandlega merktir hrunflokkunum alræmdu, sem græða mest á öllu saman. Þetta minnir á þegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, uppáklæddur í kjólföt og með föðurmorðingja um hálsinn, skeit í buxurnar í mikilli stertimennaveislu hér um árið og pestin af honum ætlaði alla viðstadda lifandi að drepa.
mbl.is Vill að málinu verði skipt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ha ha ha góður :-)

Níels A. Ársælsson., 28.6.2014 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband