Leita í fréttum mbl.is

Að viðlagðri aflimun við fyrsta brot og hengingu við annað brot

old_1241490.jpgSannast sagna er reykingafólk alveg sérlega hvimleiður ófénaður, óalandi og óferjandi í hvívetna. Ef ríkisstjórnin hundskas ekki til að banna tóbaksreykingar, að viðlagðri aflimun handar við fyrsta brot og hengingu við annað brot, strax í haust, þá höfum við ekkert við ríkisstjórn að gera. Það er ekki hægt að búa við það lengur að tóbaksvesalingar fái óáreittir að ergja eigingjarnt og taugatryllt fólk með tóbaksreykjarlykt.

Um langan aldur hefir frú Ingveldur verið einarður tóbaksreykingaandstæðingur, sannkallaður hatursmaður reykinga. Fyrir nokkrum árum tók nágranni hennar, afgömul kerlingarbeygla, uppá þeim andskotans ósið að reykja vindlinga og stundum pípu úti á troppum hjá sér og lagði mökkinn frá henni yfir á lóð frú Ingveldar þegar vindur var óhagstæður. Að sjálfsögðu sendi frú Ingveldur þessari óforskömmuðu kölskakellingu tóninn; hótaði henni barsmíðum og limlestingum ef hún hætti ekki þessari djöfuls reykmengun. Sú gamla svaraði því einu að píra bara glyrnurnar á einkar ósvífinn hátt framan í frú Ingveldi og lyfta öxlunum. Það var ekki fyrr en frú Ingveldur birtist með haglabyssuna og lét eina sendingu vaða úr henni, hárfínnt til hliðar við þá gömlu, að hún tók loks sönsum og steinhætti að reykja á tröppunum. Um það bil viku eftir að skotið reið af, skreið Brynjar Vondalykt inn um glugga hjá gömlu konunni með það að hugsjón að nauðga henni. Þetta hefði hann betur látið ógert, því gamla konan var ekki öll þar sem hún var séð. Því þegar Vondalyktin hófst handa við að ná fram vilja sínum snöri kérlíngin taflinu við og lauk svo leiknum, að það var hún sem nauðgaði honum og það svo hressilega að hún varð að fá sjúkraflutningamenn til að flytja Brynjar Vondulykt útúr íbúð sinni og koma honum á Slysavarðstofuna.

Að þessu sögðu fæ ég mér kaffibolla og eina rauða Winston.
mbl.is Reykingar óbærilegar nágrönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Truthfully smokers is quite particularly disagreeable task minority scumbags, nobody wants to have a close and ofer in all respects. If the government does not have the moral courage to ban tobacco, subject to amputation of a hand at the first break and hanging with another break, right in the fall, then we have nothing to do with the government. It is not possible to live with it longer receive poor tobacco, as they see fit, irritate nerve wild and selfish people with tobacco smoke odor.

For decades has been Mrs. Ingveldur hard anti smoking, smoking true foe. A few years ago, her neighbor, geriatric woman turn, offer them fucking immoral to smoke cigarettes and sometimes pipe outside on the steps with a mocha and put her into the plot Mrs Ingveldar when the wind was unfavorable. Of course, sent Mrs. Ingveldur this barbarous devil woman tone; threatened her beatings and mutilation if it means not this fucking smoke pollution. The old answered only with the killer just eyes, a very cheeky way, in front of Mrs. Ingveldi, and lift shoulders. It was not until Mrs. Ingveldur appears with a shotgun and had a transmission wade out of it, just adjacent to the old, that she had a claim and stop smoking permanently on the stairs. About a week after the shot fare, Brynjar bad smell crawled in through a window in an old woman with a vision to rape her. This he would have viewed, the old lady was not all she had seen. Therefore, when a bad smell began to achieve his will snare Crone table and ended the game, it was she who raped him so excitedly that she had to get the ambulance to transport Brynjar bad smell Experience superior apartment and bring him to the emergency .

Having said this, I get me a cup of coffee and one red Winston.

Jóhannes Ragnarsson, 23.7.2014 kl. 18:13

2 Smámynd: Aztec

Þégar ég las síðustu línuna var eins og ég fyndi reykjarstybbuna af þér gegnum netið. Ég ætla biðja þig vinsamlegast að vera ekki að reykja meðan ég les færslurnar frá þér.

Aztec, 24.7.2014 kl. 12:42

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það getur verið erfitt að fá sér Winston, Aztec, jafnvel á meðan þú ert að lesa.

Jóhannes Ragnarsson, 24.7.2014 kl. 13:20

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Leiðrétting á athugasemd: Það gerur verið erfitt að neita sér um að fá sér Winstin, Aztec, jafnvel á meðan þú ert að lesa.

Jóhannes Ragnarsson, 24.7.2014 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband