Leita í fréttum mbl.is

Sjálfsagt og bráðnauðsynlegt afbrigð af sprúttsölu á teikniborðinu

ingv16_1240389.jpgFyrst að Daníel efnafræðingur ætlar að setja á laggirnar einhverskonar afbrigði af sprúttsölu, er greinilegt að hann hefir skaðmenntast þegar hann lagði stund á efnafræðinámið. Það er auðvitað til mikils hagræðis fyrir mann, eða konu, sem er á dúndrandi kojufylliríi að geta snúið sér til Daníels efnafræðings þegar farið er að lækka á kútnum. Þá er svona heimsendingarsprúttsala í vísindaskyni glæsilegt úrræði fyrir vammlausar gardínufyllibyttur. Reyndar man ég ekki betur en leigubílstjórar önnuðust svona heimsendingarþjónustu í gamla daga, en sennilega eru þeir hættir þessu fyrst efnafræðingurinn Daníel telur sig kjörinn til starfans.

Allt um það, þá er einkar gleðilegt að hinn hámenntaði Daníel sé þeirrar skoðunnar, að matvörukaupmenn sjái um að pranga út brennivíni, rétt eins og de la Gvendur Gúðmúndsen í Gúðmúndsensbúð gerði fyrir liðlega hundrað árum.

Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar var samþykkt með öllum atkvæðum, að allar matvöruverslanir tækju upp það fyrirkomulag, að hafa kétið, fiskinn og kálið í öðrum enda búðarinnar en brennivínið og bjórinn í hinum endanum. Ennfremur, að heimsendingarþjónusta á vínanda og öðru hressandi stöffi sé bæði bráðnauðsynleg og sjálfsögð, því að brennivínið verði að hafa sinn gang, eins og segir í samþykktinni. Að formlegum fundi loknum, skáluðu viðstaddir í kogara, nema Brynjar Vondalykt, hann skálaði í Admíralrakspíra. En því höfðu frú Ingveldur og Kolbeinn og gestir þeirra fyrrgreinda vökva í glösum sínum, að birgðir af viðurkenndum ríkisverslunarveigum voru á þrotum og þrjár klukkustundir þar til búðarholur ÁTVR væru opnaðar.
mbl.is Fólk fái áfengið heim að dyrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Filippus Jóhannsson

Eflaust muna margir eftir þegar hægt var að panta góðann eða bættann leigubíl í gamla daga kannki er það hægt enn í dag?

Filippus Jóhannsson, 19.9.2014 kl. 23:40

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég veit ekki Filippus, löngu kominn útúr þeim málum. Svo heyrði maður talað um hótelherbergi með bættu rúmi.

Jóhannes Ragnarsson, 19.9.2014 kl. 23:55

3 Smámynd: Aztec

Það var Borgarbílastöðin sem annaðist áfengiskaup fyrir unglinga undir lögaldri á síðustu öld, aðallega

pólskt vodka og aquavitae (agua de la vida).

Sú leigubílastöð er víst ekki starfrækt lengur eftir að Hreyfill og Bæjarleiðir gengu í eina sæng. Hvorki Borgarbílastöðinni né Steindóri var boðið inn fyrir rúmstokkinn, svo að þeir lögðu upp laupana.

Já, sú var tíðin. Í dag má ég ekki einu sinni horfa á vínflösku án þess að verða timbraður strax. Svona vinnur líkami manns gegn áhugamálunum og þvingar mann í bindindi.

- Pétur D.

Aztec, 20.9.2014 kl. 03:37

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ha ha ha, já Brynjar Vondalykt kann gott að meta og veit að Admíral rakspírinn kætir karlmannslund :-)

Níels A. Ársælsson., 20.9.2014 kl. 11:20

5 Smámynd: Hörður Halldórsson

Hörður Halldórsson, 20.9.2014 kl. 14:40

6 Smámynd: Hörður Halldórsson

Hún er enn til þessi stöð. Veit samt ekki hvort þeir séu með "góða" bíla.

Hörður Halldórsson, 20.9.2014 kl. 14:41

7 Smámynd: Haraldur Axel Gunnarsson

Aztec, þetta er ekki rétt hjá þér, Borgarbílastöðin er ennþá starfrækt. Hreyfill keypti Bæjarleiðir árið 2001.

Ég hætti að sendast í ríkið mjög fljótlega vegna þess að oft hafði fólk ekki peninga fyrir sendingunum og ætlaðist til þess að maður lánaði þeim veigarnar fram að mánaðarmótum. 

Haraldur Axel Gunnarsson, 20.9.2014 kl. 15:53

8 Smámynd: Aztec

Jæja, þetta sýnir að ég veit ekki allt. Málið er það, að leigubílar frá Borgarbílastöðinni eru ekki mjög sýnilegir, en ég hefði auðvitað átt að tékka á netinu fyrst.

En vefur Borgarbílastöðvarinnar fær hrós frá mér fyrir að nota áfram götunafnið Skúlatún.

Aztec, 20.9.2014 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband