Leita í fréttum mbl.is

Hvimleitt frekjukast ofdekraðs yfirstéttarkrakka

xs4_1046238.jpgÞað er varla héraðsbrestur þótt Steinunn Valdís segi sig úr einhverri stjórn og hverfi á braut, enda lítt fýsilegt fyrir nokkurn mann að hún komi að opinberum ákvarðanatökum. En nú hefur þessi háborgaralega glanspía semsagt sagt sig úr stjórn Íbúðalánasjóðs með fremur óskiljanlegu snakki um, að stórar ákvarðanir og raunveruleg stefnumótun sjóðsins fari fram annars staðar en á vettvangi stjórnar hans. Hinsvegar vantar alveg inní málflutning frú Steinunnar Valdísar, hvar hinar stóru ákvaðanir og raunveruleg stefnumótun Íbúðarlánasjóðs fer fram. Þess vegna lítur afsögn hennar út eins og hvimleitt frekjukast ofdekraðs yfirstéttarkrakka með krónískt harðlífi.

Svo mætir til leiks eitt af hinum undanrennublautu dekurdýrum Ögmundar Jónassonar og Steingríms Joð, Drífa Snædal, og kveðst taka undir ruglandina í þeirra háborgaralegu; slær úr og í tekst að þvæla málið enn betur inní umbúðir leyndarhyggjuþvættingsins. En auðvitað ætlar Drífa Snædal ekki að segja sig úr stjórn Íbúðarlánasjóðs, þrátt fyrir meinta annarlega stjórn hans, enda er stjórnarseta í Íbúðarlánasjóði sæmilega launaður pólitískur bitlingur.
 
Í raun og veru eiga apparöt eins og Steinunn Valdís og Drífa Snædal ekki eitt einasta erindi í pólitík af nokkru tagi, og þá allrasíst fyrir hönd stjórnmálaflokka, sem þykjast vinstrisinnaðir og eru sagðir byggja á arfleifð sósíalismans. Fénaður, sem aldrei getur komið hreint fram, er ekki treystandi fyrir einu eða neinu, nema þá helst að bralla með einhverja drullu á vettvangi samtryggingar svikulla atvinnustjórnmálamanna. En af svikulum atvinnustjórnmálamönnum eigum við svo mikið, að aðkallandi er að grisja rækilega í þeim hópi og helst að eyða honum alveg.
mbl.is Tekur undir orð Steinunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Værir þú til í að taka sæti í stjórninni og sæta ábyrgð á geðþótta og gerræðisákvörðunum starfsmanna sem eru þekktir af því að fara ekki eftir lögum og reglum sem um starfsemina gilda ? Svo er skattgfreiðendum sendur mistakareikningurinn í tuga- og hundruðamilljarðavís á hverju ári !

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.9.2014 kl. 11:55

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Segðu mér meira, nafnlausi predikari. Eru það óbreyttir starfmenn Íbúðalánasjóðs sem ráð þar lögum og lofum og verða þess valdandi að stjórnafólkið hleypur grenjandi á brott?

Jóhannes Ragnarsson, 29.9.2014 kl. 18:44

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Það er rétt til getið.

Ég hef hitt marga sem hafa orðið fyrir barðinu á löglausum geðþóttaákvörðunum starfsmanna þessarar stofnunar. Steinunn Valdís lýsir þessu vel og kom ekki á óvart miðað við það sem ég hafði kynnst af viðtölum við þolendur stjórnsýsluofbeldis starfsmanna sjóðsins. Fleiri eins og Haukur og Rósa Guðbjartsdóttir flúðu stjórnina. Það tók Rósu um það bil viku að átta sig á þessu og sagði sæti sínu umsvifalaust lausu. Hauki leist ekki á það sama iog Steinunn Valdís lýsti. Hún mun meira að segja hafa haldið ýmsu leyndu og ekki upplýst í bréfinu - það bitastæðasta var ekki sett inn í yfirlýsinguna segja mér fróðir.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 29.9.2014 kl. 18:51

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þetta hlýtur þá að vera asskoti harðsvírað gengi, sem starfar hjá Íbúðalánasjóði, fyrst að stjórnarmenn fyrirtækisins hrökklast hver af öðrum á brott.

Jóhannes Ragnarsson, 2.10.2014 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband