Leita í fréttum mbl.is

Á haða spillingarstigi er ríkisstjón íslenska lýðveldisins?

Á hvaða spillingarstigi ætli einkavinavæðing Framsóknaríhaldsins sé? Nú, eða þátttaka Íslands í Íraksstríðinu? Að maður minnist nú ekki á kvótamafíustarfsemina.
mbl.is Spilling á hæsta stigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

"kvótamafíustarfsemina" Endemis rugl er þetta í þér. Kvóti var og er skerðing á veiðimöguleikum. Kvóti er það eina sem gerir sjávarútveg í dag arðbæran. Eða kannski villt þú að veiðiheimildum sé úthlutað upp á nýtt á hverju nýju fiskveiði ári svo að pólitíkusarnir geti nú gefið flokks gæðingunum sinn hlut. eða viltu frekar að sjávarútvegurinn verði settur undir sama hatt og sauðfjárbændur? geta ekki rekið bú án þess að fá styrki. Ef ekki væri fyrir kvótakerfið þá væri ekki byggð úti á landi nema á örfáum stöðum og útgerðin gæti aldrei borgað sjómönnum þau laun sem þeir hafa í dag. 

Fannar frá Rifi, 26.3.2007 kl. 13:32

2 identicon

Það er ekki  hægt að taka menn alvarlega sem eru með svona upphrópanir, eins og þetta: "Kvótamafíustarssemina"  Heldur þú að fólk að það sé boðlegt að bera fram svona bull setningar, heldur þú að það taki þig einhver alvarlega ?

Lesandi (IP-tala skráð) 26.3.2007 kl. 13:44

3 identicon

Fannar frá Rifi og nr.2: Hvar hafið þið verið síðustu árin. Kvótanum var úthlutað til ríkustu fjölskyldna Íslands fyrir nokkrum árum á meðan Halldór Ásgrímsson var sjávarútvegsráðherra. Þess má geta að fjölskyldan hans á Hornafirði græddi heldur betur og eru eignir hennar metnar á yfir 200 milljónir (sem Halldór kallaði smápeninga). Ef þetta er ekki mafíustarfsemi hvað er það þá?

Högni (IP-tala skráð) 26.3.2007 kl. 15:58

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nújá, það er þá "kvótinn" sem er það eina sem gerir sjávarútveg aðbæran. Ég hélt í einfeldni minni, að það væri fiskurinn sjálfur sem skapaði verðmæti. Ég hef svosem heyrt um, að digrir kvótistar hafi haft ágætlega uppúr því að leigja frá sér slatta og slatta af kvótanum sínum og jafnvel að braska svolítið með sameign þjóðarinnar, en það er auðvitað allt í góðu meðan Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn halda sinni traustu verndarhendi yfir kvótahagræðingunni og kvótagæðingunum sem úthluta leiguliðum sínum aflaheimildir fyrir stórfé.

Jóhannes Ragnarsson, 26.3.2007 kl. 17:41

5 identicon

Alþjóðlegir staðlar segja spillingu næsta enga hér á landi

Gunnar Dofri Ólafsson (IP-tala skráð) 26.3.2007 kl. 19:59

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Afskaplega merkilegrir staðlar það. Þetta hljómar eins og Veðurstofa Íslands fengi sér nýjar mæligræjur sem tilkynntu veðurfræðingunum í gríð og erg, að úti væri logn og 20 stiga hiti þegar í raun geysaði stórhríð með viðeigandi gaddi og stólparoki. 

Jóhannes Ragnarsson, 26.3.2007 kl. 20:33

7 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Ekki hægt annað en að hlæja af þessum endemis plottum stjórnmálamanna, - úreltir starfshættir! 

Vilborg Eggertsdóttir, 27.3.2007 kl. 01:17

8 Smámynd: Fannar frá Rifi

Ég var aðeins nokkura ára þegar kvótinn var settur á hér á landi. En ég veit það samt að þetta er bull:"Kvótanum var úthlutað til ríkustu fjölskyldna Íslands". Þetta er svo mikil endemis þvæla að það er fynndið. 

Útgerðar menn voru upp til hópa fátækir og háttu ekkert meira heldur en næsti maður. Þeir lifðu ekki neinum munaði. Það er nánast hægt að segja að skipstjórarnir þeirra hafi haft það betur en þeir sjálfir. 

Afhverju haldið þið að stjórnvöld hafi þurft að koma til hjálpar og fjármagna togara kaup? Það vildi enginn sjá fiskinn meðan hann var verðlaus. Hann var verðlaus. um 90% aflans kom til afnar á örfáum mánuðum yfir há vertíðina og síðan sást ekki fiskur það sem af var ári. Þetta hafði náttúrulega þau áhrif að fiskurinn var verðlítill því það var svo mikið framboð af honum í örfáamánuði og síðan hina þá var ekkert framboð og fisk verð náði hæstu hæðum.

Kvótakerfið hefur stuðlað að ákveðnum jöfnuðu í löndun á fiski. Núna kemur fiskur í höfn nánast allt árið og fyrirtæki geta selt til matvælaframleiðenda erlendis á betra verði því þeir geta selt allt árið. Þetta er stöðugleiki. Stöðugleiki sem sjávarútvegur og öll landsbyggðin á Íslandi þarfanst en einhverjir öfstækisfullir og öfundsjúkir menn vilja ekki að öðrum gangi vel.

Með að kvótinn fari úr byggðarlaginu. Já þá getum við sagt að það er ekki sama Jón og séra Jón. Þegar kvótinn fór frá Ólafsvík í stórum stíl til norðulands þá hlustaði enginn. En þegar Snæfellsbæingar (Ólafsvík er í Snæfellsbæ) kaupa fyrirtæki fyrir norðan þá standa málinn allt örðuvísi og fréttamenn og almenningur verður alveg æfur.

En afhverju flyst kvótinn á milli staða? Afhverju safnast hann saman á fáar hendur? Því þessar fáar hendur hafa kjark og dug til þess að kaupa hann og slá lán fyrir honum. Lán er ekki að stela frá almenningi. En afhverju geta þeir keypt hann? Eru það ekki einhverjir sem selja kvótann frá sér? Eru það ekki þessir menn sem liggja út á spáni á sólarströnd með tékka í vasanum upp á hundruð milljóna?

Afhverju eruð þið þá alltaf að ráðast á þá sem eru eftir í greininni? Hvað hafa þeir gert af sér? Hafa þeir ekki haldið sig í greininni og reynt að reka sjávarútvegsfyrirtæki sem eru landinu til góðs og skila peningum til samfélagsins? Afhverju er alltaf ráðist á þá sem eftir eru bara vegna öfundar og heiftar? Þið ættuð frekar að beita kröftum ykkar gegn þessum sem seldu sig út heldur en að reyna að kvetja aðra að selja sig úr útvegnum. Já fyrir hverjar einustu kosningar koma útvegsmál upp á yfirborðið korter fyrir kosningar og einu áhrifin sem þessi umræða hefur er að reka fleyri til þess að selja sig út til þess eins að sleppa áður en einhverjir rugludallar með skoðanir sem ganga gegn öllu því sem er viðskiptalegs eðlis.

Ef hugmyndir um upptöku á kvóta eða uppstokkun að einhverju tagi nær fram að ganga þá mun ekki fást nokkur Íslendingur til þess að vinna við hættuleg störf fyrir engan pening. Íslenskir sjómenn eru hæst launuðustu sjómenn í heiminum.  

Fannar frá Rifi, 27.3.2007 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband