Leita í fréttum mbl.is

Talsmaður lægstu hvata mannskepnunnar - eða hvað?

djöfsiÁsmundur Friðriksson þingmaður er ekki neinn sendiboði. Með óumbeðnum þvættingi sínum um múslima á Íslandi hefur hann gerst, vonandi óafvitandi, talsmaður viðhorfa sem höfða til lægstu hvata mannskepnunnar, viðhorfa sem mjög er er  hampað nú um stundir af einstaklingum sem fá útrás fyrir skítlegt eðli sitt og öfga með því að kynda undir rasisma, fasisma og nasisma. Ég trúi því ekki, að maður sem verið hefur bæjarstjóri og situr nú á þingi í umboði kjósenda, vilji vera í flokki með hinum ruddalega rasistaskríl sem opinberað hefur fávisku sína og innræti uppá síðkastið í fjölmiðlum og á netinu.


mbl.is Má ekki drepa sendiboðann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hann hlýtur að hafa farið í þjálfunarbúðir í Valhöll.

Í ljósi þess væri kannski þörf á að kanna bakgrunn hans?

Guðmundur Ásgeirsson, 13.1.2015 kl. 19:22

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það þarf ekki mjög glöggskyggnan mann til að sjá að nánast allt forystufólk Sjálfstæðisflokksins til sjávar og sveita, á alþingi og í sveitarstjórnum, hefur fengið þjálfun í sömu ævingarbúðunum. Þetta lið er eins og ljósrit hvað af öðru í fjölmiðlaviðtölum og í ræðupúlti.

Jóhannes Ragnarsson, 13.1.2015 kl. 20:27

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er auðvitað ágætt þegar hryðjuverkamenn afhjúpa sjálfa sig sem slíka með opinberum hætti. Það hjálpar okkur hinsvegar ekki að uppræta mun alvarlegri hryðjuverkastarfsemi.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.1.2015 kl. 20:43

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Á að drepa málfrelsið,sem birtist hljóðlátt á Faceboock? Hann segir í viðtali á útv, Sögu,að hann hafi tekið þátt í tilfinningaþrúnginnni sorg og samúð Dana (þar sem hann var staddur),sem voru allstaðar í kringum hann að dreifa blómvöndum,vegna þessa hryggilega atburðar. Eins og þið kannist eflaust við langar mann sérstaklega í útlöndum að hleypa tilfinningunum út og hvers vegna í ósköpunum ekki þessari,sem hann skrifaði;líkt og maður segði: "Hvað getum við gert til að hindra,að þessi ósköp berist ekki heim til mín/okkar"? Ríkisstjórnir eru einmitt að framkvæma slíka aðgerð viða í Evrópu. Ég vil að við göngum úr Shengen,samhliða ESB og EES. 

Helga Kristjánsdóttir, 13.1.2015 kl. 21:11

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvað áttu við, Helga, þegar þú spyrð hvort að drepa eigi málfrelsið?

Jóhannes Ragnarsson, 13.1.2015 kl. 21:18

6 Smámynd: Tryggvi Helgason

Islam er ekki "trú" eða trúarbrögð, heldur alræðis- og einræðisstefna, líkt og kommúnistminn og nasistminn.

 

"Islam" þýðir undirgefni á arabísku og allir þeir sem undirgangast að vera múslimir, þeir verða að hlýða í einu og öllu, því sem þeim er sagt. "Imarnir", - prestarnir þeirra sjá um það og hafa kóraninn að leiðarljósi.

 

Þegar einhver Iman segir einhverjum múslima að fara til Frakklands, Þýskalands eða Íslands, þá verður sá hinn sami að fara, hvort sem honum líkar betur eða verr. Hver einasti múslimi sem kemur inn í Evrópu, er sendur þangað.

 

Þeim er skipað að fara, - þeim eru gefnar allar upplýsingar um það, hvað þeir eigi að gera, hvað þeir eigi að segja, hvaða pappíra þeir eigi að hafa í höndunum o.s.frv. Ef þeir ekki hlýða, þá vita þeir hvað þeir eru að kalla yfir sig.

 

Er þetta eitthvað sem við, Íslendingar, viljum hleypa inn í landið ? Mitt svar er “NEI”, - ég vil ekkert inn í landið, - ekkert sem tengist Islam eða kóraninum á nokkurn hátt.

 

 

Við höfum nóg vandamál fyrir, þótt ekki bætist nú við, þessi óskapnaður.

Tryggvi Helgason, 13.1.2015 kl. 21:46

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þekkir þú persónulega einhverja múslima sem búa, eða hafa búið, á Íslandi, Tryggvi Helgason? Eða einhverja múslima yfirleitt?

Svo ætla ég að biðja þig að nefna ekki kommúnisma í sömu andrá og nasisma og íslam því þar er lítill sem enginn skyldleiki á milli. Til viðbótar væri hollt fyrir þig að hugleiða alræði auðmagnsins og tveggjaflokka einræði, eins og í USA og víðar, sem kallað er lýðræði á Vesturlöndum. Því til viðbótar væri uppbyggilegt fyrir þig að velta stundarkorn fyrir þér, hvort verið geti að heimsvaldasinnaðair kapítalistar eigi einhverja sök á reiði múslima í garð Vesturlanda.

Jóhannes Ragnarsson, 13.1.2015 kl. 22:00

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Allur "ismi" er slæmur. Um það held ég að flestir geti verið sammála. Umræðan sem nú viðgengst um Facebookfærslu þingmannsins er, að ég tel, líka komin út í einhverskonar "isma", líkt og umræðan um fjarveru forsætisráðherra í París. Hvaða "ismi" þetta er orðinn, átta ég mig hins vegar ekki alveg á og undrast meir og meir hve samlandar mínir eru orðnir óvægnir og andstyggilegir, í daglegri umræðu. Hvernig væri að taka heita pottin á þetta og slaka aðeins á? Spara stóru orðin og hætta þessu skítkasti, þó einhver opni munnin, sem þér ekki líkar, eða ert ósammála. Hvernig veistu til að mynda hvort Skrattinn er rauður og með horn? 

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 14.1.2015 kl. 01:58

9 Smámynd: Salmann Tamimi

Tryggvi Helgason Vandamál okkar eru menn eins og þú

Salmann Tamimi, 14.1.2015 kl. 09:17

10 identicon

Sæll Jóhannes Beitningameistari - og aðrir gestir þínir !

Jóhannes !

Hvernig skyldi standa á því - að aldrei dúkka upp nein vandamál, gagnvart Víetnömum (oftast Bhúddistum) / eða Indverjum (oftast Hindúatrúar), sem setjast að, hér á landi ?

En - um leið: og handklæðahausar Múhameðs dúkka upp hérna eða annarrs staðar, reyna þeir AÐ TROÐA sínum lífsvenjum og alls lags óþverra, upp á sína gestgjafa - enda reknir áfram: af viðlíka Heimsvaldastefnu og ofstopa, eins og Kommúnista- og Nazista gerpin.

Ekki satt - síðuhafi góður ?

Hræsnarar: eins og Salmann Tamimi, er ekki einu sinni svaranna verður / og haltu þínu striki gagnvart honum sem öðrum Mið- Austurlanda undanvellingum Tryggvi.

Algjörlega: hiklaust !

Með hinum beztu kveðjum - hinsvegar: ekki neinum, til Salmanns og annarra áþekkra eingyðis tilbiðjenda / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.1.2015 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband