Leita í fréttum mbl.is

Hið innsta eðli - Toni Ómos endurreistur - Samkvæmi undirbúið

xd1_1253260.jpgJæja piltar mínir, þá er ekkisens Hönnubirnumálinu lokið og aðeins á eftir að koma í ljós hvort Hanna Birna ætlar að gera þjóðinni þann sjálfsagða og eðlilega greiða að segja af sér þingmennsku. Þá mun tíminn leiða í ljós hvort Sjálfstæðisflokkurinn á ekki í pokahorninu sendiherrastöðu til að verðlauna hinn fallna vonarpening eins og Flokkurinn gerir gjarnan við sína bestu menn. Hinsvegar er borðliggjandi að Flokkurinn mun leggja sig í framkróka með að hylja þá staðreynd, að í Hönnubirnumálinu kom hans innsta eðli fram á fremur óheppilegan hátt. En innsta eðli Sjálfstæðisflokksinns er sem kunnugt er á þá leið, að hann eigi allt og megi allt.

Í ljósi síðustu atburða má ljóst vera, að Sigmundur Davíð og Bjarni Ben verða að leggja land undir fót og hafa uppá hinum burtrekna Tona Ómos, biðja hann fyrirgefningar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og bjóða hann velkominn til Íslands. Og til að bæta fyrir brotið gegn Tona, ættu þeir kumpánar ennfremur að bjóða piltinum að búa ókeypis í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum í tvo ár, fæða hann og klæða, ljá honum ráðherrabifreið með bílstjóra í þessi tvö ár og veita honum heimild til að sækja alla ríkisstjórnarfundi að eigin vild á sama tímabili.

Þegar frú Ingveldur frétti af áliti umboðsmanns í morgun, varð henni svo mikið um, að hún pantaði sendiferðabireið til að flytja sér heim 120 flöskur af sterku áfengi auk myndarlegra birgða af léttu víni og áfengu öli. Er viðbúið, að margt verði um manninn á heimili frú Ingveldar og Kolbeins eiginmanns hennar yfir helgina þar hortugheit og ósvífni umboðsmanns Alþingis verða rædd í þaula yfir dýrum veigum og ákvörðun tekin um til hvaða ráðstafanna verði gripið gegn þjóðinni útaf þessu hörmungarmáli, sem er, að mati frú Ingveldar og Kolbeins, ekki neitt helvítis mál heldur samsæri og einelti skítugra óþrifnaðarhunda á hendur framúrskarandi efnilegrar og rétthugsandi stjórnmálakonu.


mbl.is Samskipti samræmdust ekki reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já nákvæmlega þetta verður og er rætt í hinum ýmsu kreðsum þessa dagana laughing

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2015 kl. 13:02

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

"Enginn grætur íslending, einan sér og dáinn".  Orti Jónas.

En hvað er með þennan kvensama, barnlausa Omos, grunaðan um mansal, sem vill komast til Kanada?
Held að ég geri bara eins og frú Ingveldur; reyni að verða mér úti um nokkra sterka (í fljótandi formi!) til þess að öðlast uppljómun og rétthugsun. embarassed

Kolbrún Hilmars, 24.1.2015 kl. 17:47

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er ekkert með Ómos, Sigmundur og Bjarni verða bara að hafa uppá honum og biðja hann afsökunnar á Hönnu Birnu og hennar liði.

Síðan má gera ráð fyrir, að Hanna Birna verði látin biðja Ómos fyrirgefningar á hjánum, hágrátandi eins og sönnum iðrara sæmir. Já já.

Jóhannes Ragnarsson, 24.1.2015 kl. 18:14

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er víst eitthvað með Ómos!  Fyrir það fyrsta - er eitthvað vit í því að senda landsstjórnina út í heim til þess að leita að manninum. Enginn virðist vita hvort hann er í Sviss, á Ítalíu eða kominn til fyrirheitna landsins í faðm kanadísku kærustunnar.
Sem málamiðlun þá má HannaBirna, krjúpa, gráta og iðrast við táberg lögmanns Ómoss-ass.

Kolbrún Hilmars, 24.1.2015 kl. 20:02

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jú, ég er þeirrar skoðunnar, að bráðnauðsynlegt sé fyrir oddvita landsstjórnarinnar að leita Ómos uppi og gera honum eitthvað til gottgjörelsis. Það myndi sýna fólki, svo um munaði, að landsstjórnin væru full iðrunar vegna fólsku Hönnu Birnu við piltinn.

Jóhannes Ragnarsson, 24.1.2015 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband