Leita í fréttum mbl.is

Brauðfóturinn okkar í forsætisráðuneytinu

xbÞað er naumast gáll á brauðfætinum okkar í forsætisráðuneytinu þessa stundina. Nú vill kallkjökrið fá ,,erlenda aðila" til að reyna að rétta hlut Víglund Þorsteinssonar eftir Brynjar Níelsson sveikst undan merkjum og kvað uppúr með að plögg jarlsins af Vallá væri best kominn í klóakinu eins og hver annar skeinispappír.

Ef svo einkennilega skyldi til takast, að Sigmundur Davíð fái ,,erlenda aðila" til að skoða endurreisn bankanna, væri tilvalið fyrir hann biðja þessa ,,aðila" sína að rannsaka lungun, lifrina og nýrun í Framsóknarflokknum, heilabú gömlu Framsóknarmaddömunnar og smáþarma, en einkum þó og sér í lagi vinganginn í görnunum á Kaupfélagsstjóranum á Sauðárkróki, Halldóri, Finni, Ólafi á Miðhrauni I. og Sigga Einars sem ekki var fullur í fréttatíma sjónvarpsins.

Eflaust fær litli húskarlinn Framsóknarmaddömunnar ekki nokkurn ,,erlendan aðila" til að gramsa í innyflum Framsóknarfjóssins nema gegni himinhárri þóknun fyrir sérlegt óþrifaálag sem óhjákvæmilega fylgir því skítverki. Hitt er svo annað mál, hvort nægilega margir séu fylgjandi því að fleygja péníngum í þessu árferði í einhverja erlenda framsóknarlubba, sem forsætisráðherra lýðveldisins hefur hug á að fá til að finna góða niðurstöðu fyrir sig og Vallárskrögginn.


mbl.is Vill rannsókn erlendra aðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband