Leita í fréttum mbl.is

Skuespilarinn í Starfsgreinasambandinu

piss3Það er að vissu leyti óvitlaust hjá Stjána Loftssyni, að líkja Birni framsóknarmanni Snæbjörnssyni, sem kaldranalegur húmor örlaganna gerði að formanni Starfsgreinasambansins, við tóma tunnu. Og vissulega á starfsgreinaformaðurinn meira sameiginlegt með Stjána Lofts en hörmulega illa launuðum verkakörlum og kerlingum, því fyrir utan að vera bræður í framsóknarfjósamennskunni eru þeir kumpánar með buxurnar jafn mikið niðrum sig í nefndabitlingum og andlegri spillingarheimsku.

Það er ekki amalegt fyrir gömlu Framsóknarmaddömuna, að hafa á sínum snærum kúnstuga jólasveina á borð við Björn framsóknarhúskarl í Starfsgreinasambandinu, Stjána Lofts í Hvalnum og Granda og Sigmund Davíð forsætisráðherra. Þeir munu eflaust reyna leggja sitt vit og sitt eðli í kjarasamningaleikritið, sem nú er hafið. Og eins og venjulega verða það verkakarlarnir og kerlingarnar sem ligga flöt í svaðinu að leikslokum. En Björn, Stjáni og Sigmundur munu fagna flissandi og kumrandi með sínum líkum í viðeigandi auðvaldsfjósum eftir vel unnið verk.

Já, það verður ekki af Birni framsóknarmanni og starfsgreinaformanni skafið, að hann er ísmeygilegur og lævís leikari og eigendum sínum í Framsóknarfjósinu til sóma. Hinsvegar munu verkakarlarnir og verkakerlingarnar ekki fitna til muna á að fóðra þennan skuespilara á margvíslegum oddvitalaunum í leikhúsi Strafsgreinasambandsins. Það er áreiðanlega rétt hjá Stjána Lofts, að Björn framsóknarmaður sé líkur tómri tunnu; og meira en það: Karlskömminn er alveg eins og kolryðguð, beygluð og götótt smurolíutunna, sem velkst hefir um í framsóknarflórnum frá ómunatíð.


mbl.is Segir oft glymja hæst í tómri tunnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband