Leita í fréttum mbl.is

Að ganga örna sinna á sorphaugnum

aparÚngir jafníngsmenn og önnur samfylkingarviðrini slá ekki slöku við allskonar ,,orðræður", ekki síst í gáfumannastíl til líta gáfulega út í augum alheimsins. En þvi miður, fyrir samfylkingargæsknin, ung sem gömul, þá rís gáfnafar þeirra og greindarvísitala ekki uppúr meðaltali gáfnavísitölu venjulega apakatta, sem hafa það þó framyfir samfylkingargægsnin að geta verið skemmtileg ef svo ber undir.

Og hræddur er ég um að ekki batni froðusnakkið á Útvarpi Sögu við að úngir jafníngsmenn, uppfullir af skítlegu krataeðli, fari að troða þar upp með ,,orðræður" sínar og apakattargáfur. Ef það gerist, þá verður lágkúran á umræddri útvarpsstöð fyrst fullkomnuð, sem útaf fyrir sig væri forvinilegt að sjá. Orðræðandi samfylkingarungmenni með krataeðlissjúkdóminn á lokastigi í háarifrildi við hina þunglamalegu útvarpsstýru á Sögu kann að vera nógu hlægilegt rétt á meðan á því stendur, en þessháttar fávithæli er varla uppbyggilegt fyrir nokkurna mann.

Um fyrirhugaða aðför krataeðlisæskunnar að Úrvarpi Sögu er ekki hægt að nota frasa á borð við ,,að gera í nytina sína" eða ,,míga í brunninn, því að Útvarp Saga er hvorki nyt né brunnur. Nær væri að líkja fyrirtæki æskufólksins í Samfylkingunni við að ganga örna sinna á miðjum sorphaugnum, eins og það er nú geðslegt tiltæki.

 


mbl.is Mótmæla „hatursorðræðu Útvarps Sögu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband