Leita í fréttum mbl.is

Taktlaus smámenni leggja steina í götu kraftaverkaborgarstjóra

gu6Það teljast mikil firn, að Gunnar I. Birgisson lýsi sig skák og mát í viðureign við einhverja ónefnda vegagerðarkurfa, ofanflóðamenni og veðurfræðinga. Gunnar I. hefir, sem kunnugt er, verið borgarstjóri að atvinnu í tugi ára og gert fleiri kraftaverk en tölu verði á komið; meira að segja Jesús Kristur, sem frægur var af kraftaverkum sínum, stenst aungvann samanburð við Borgarstjórann mikla, sem stýrt hefir bæði Kópavogi og Fjallabyggðarborg af áður ókunnum röggskap og naglfestu.

Trúlega eru fantarnir í vegagerðinni, ofanflóðasjóðnum og veðustofunni rakin smámenni, sem skirrast ekki við að leggja, af tómri illkvittni, eins marga steina og þeir geta í götu kraftaverkasinnaðra heiðursmanna. Megi skömm þeira vera uppi og lýðum ljós meðan nokkur hræða finnst á Íslandi. Sem betur fer lætur heljarmenni eins og Gunnar Borgarstjóri ekki einhverja illa gerða bögubósa máta sig. Í næstu skák mun hann beita þeim drottningargambíti sem dugar á þessa dela. Hann mun ekki láta sér nægja að máta þá heimaskít, því að auki mun hann lemja þá og kremja þá og fletja þá út og hakka þá í kássu. Það hefir nefnilega aldrei þókt góðri lukku að stýra, egna ofurmenni, sem í ofanáleg er kraftaverkamaður.

Enn eru þeir á dögum, sem sáu Borgarstjórann mikla boxa dusilmennið Brynjar Vondulykt, heima hjá frú Ingveldi og Kolbeini, svo hann skondraðist inní opinn pottakáp. Þegar þar var komið sögu, lögðu allir viðstaddir á flótta og stukku útum dyr og glugga, nema Máría Borgargagn og húsmóðirin á staðnum, frú Ingveldur. En Vondalyktin lét fyrirberast í aungviti í pottaaskápnum þar til hann vaknaði að afliðnu hádegi daginn eftir. 


mbl.is „Við erum eiginlega skák og mát“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband