Leita í fréttum mbl.is

Tilkynning um þátttöku í Druslugöngunni 2015

kolb14.jpgNú í morgun sendu frú Ingveldur og Máría Borgargagn út tilkynningu þess efnis, að þær hefðu ákveðið að taka þátt í Druslugöngunni 2015 íklæddar einu dömubindi hvor um sig, en fataleppalausar að öðru leyti. Enfremur munu þær leiða Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra á fjórum fótum á eftir sér í leðuról í göngunni til að sýna þingheimi hverskonar ódráttur og gerpi sá mannstauli er. Hinsvegar er Indriði Handreður, nýbakaður eiginmaður Máríu Borgargagns, helsti ósamstafsfús varðandi þetta verkefni og ber fyrir sig, að það að vera dreginn á fjórum fótum í bandi um stræti höfuðborgarinnar kunni að bitna á mannorði hans.

Þá segir ennfremur í tilkynningunni, að þær stallsystur séu ekki einungis druslur, heldur og líka dræsur af sverustu sort og eigi perralingarnir ekki von á góðu, ef þeir reyna fyrir sér með því að hlaupa úr launsátri á harðaspretti, beint inní Druslugönguna, í þeim tilgangi að nauðga öllu þar sem hönd á festir. Segjast þær frú Ingveldur og Borgargagnið ekki telja efir sér, að ganga milli bols og höfuðs á slíkum deleröntum ef til kæmi.

Það verður eflaust stórbrotin sjón, að sjá þverskurð þjóðarinnar, þau Dag bé Egkertsson, Blöndal saungkonu, Öldu Villuljós, Uglu fræðslustýri, ásamt með þeim frú Ingveldi og Borgargagninu í bömubindi einu fata og með Kolbein og kanske Handreðinn á fjórum fótum á eftir sér, geysast eins og óvinnandi herfylki um götur Reykjavíkur, þeirra erinda að bjóða nauðgurum og öfuguggum þessa lands byrginn á leiftrandi hátt. Hinsvegar hefir Kolbeinn Kolbeinsson áhyggjur af því að verða aumur og blóðugur á knjánum við að skríða eftir malbikinu, en það er önnur saga, en hann mun í staðinn fá að hafa hvítan matardisk límdan á rassinn til að verjast óviðkunnanlegu áreyti siðblindra óþokka.


mbl.is Druslur hanga í strætóskýlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband