Leita í fréttum mbl.is

Í kvöld gerðu afglæpavæðingarandstæðingar aðsúg að heimili friðsamra borgara

ingv36.jpgFrú Ingveldur sagði í kvöld, á fundi í Félagi frjálslyndra vestrænna kvenna á Íslandi, að nú væri einmitt rétti tíminn til afglæpavæða allt sem tengist svokallaðri próstitútsjón, sem Íslendingar, af sinni alkunnu afdalaforræðishyggju, kalla vændi eða hórmang. Frú Ingveldur sagðist nefnilega vera orðin langþreytt á að borga sektir fyrir Kolbein einginmann sinn vegna heimsókna hans á hóruhús. ,,Þessir andskotar verða aldrei fullsaddir af að gera þjóðhagslega arðbæra karla á miðjum aldri ærulausa glæpamenn fyrir það eitt, að sinna kalli náttúrunnar á heilbrigðan og hagvaxtarjákvæðan hátt með því að kaupa dýra þjónustu á þartilgerðum heimilum," sagði frú Ingveldur og bætti við, að góð ferð eiginmanna á ,,bordel" væri sönn ávísun á margelfda hamingju í hjónabandinu, það gæti hún sjálf vitnað um af eigin reynslu.

Þá gaf frú Ingveldur minna en skít í afstöðu ófullnægðra háskólamera gegn afglæpavæðingarkonsert Amnesty International, og að þessar kynlegu frussur væru, margar hverjar, í sömu setningunni á móti afglæpavæðingu hórdóms en með afglæpavæðingu á sölu og neyslu LSD, heróíns og hassis. -Þetta er skömm og hneysa og það ætti að taka þessar hlussukérlíngar úr umferð ásamt meykörlunum sem hanga eins og hundar á roði í skottinu á þeim, sagði frú Ingveldur, -enda berjum við Kolbeinn og okkar vinir ævinlega svona fólk þegar það verður á vegi okkar! 

Þegar frú Ingveldur kom heim til sín, eftir að hafa flutt frjálslyndum vestrænum konum fyrlestur sinn, gerðu afglæpavæðingarandstæðingar aðsúg að henni og heimili hennar. Það kom hinsvegar andskotum frú Ingveldar í opna skjöldu, þegar hún, eiginmaður hennar og vildarvinir, þurstu fyrirvaralaust útá stétt og beindu byssukjöftum að þeim. Og án þess að svo mikið sem einu skoti væri hleypt af, flúðu afglæpavæðingarandstæðingar af hómi sem einar huglausar heybrækur og munu aðsúgsaðgerir þeirra úr sögunni.


mbl.is Vændi nær þrælahaldi en starfsgrein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Frú Ingveldur er mjög framfarasinnuð og alveg rétta sortin 

Níels A. Ársælsson., 11.8.2015 kl. 23:06

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

,,Alltaf skítug, alltaf full,
alveg er hún rétta sortin." var orkt um frú Ingveldi á hennar yngri árum og var hún talin til sóðakvenda í þann tíð.

Jóhannes Ragnarsson, 11.8.2015 kl. 23:27

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú kannt sannarlega að skemmta okkur, Jói, með þessum líka vinum þínum eða góðkunningjum, Ingveldi, Kolbeini & Co.laughing

Jón Valur Jensson, 12.8.2015 kl. 00:46

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvernig er það ef ESB gerir vændi löglegt, þurfa EES löndin ekki að gera það sama?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 12.8.2015 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband