Leita í fréttum mbl.is

Hann mun sturta öllum hroðanum í eldsofninn í Sorpu

gu6Bæjarstjórn Kópavogs er fræg af þeim endemum að vera eingöngu skipuð gúmmíkörlum af báðum kynjum. Af sjáfu leiðir að slík stjórn kemur aungvu vitibornu í verk, hvort heldur hún samþykkir eitthvað eða nákvæmlega ekkert. Eitt tókst þó þessum dæmalausu liðleskjum að afreka, en það var að flæma borgarstjóra Kópavogs, herra Gunnar I. Birgisson, úr bænum á heldur lúalegan hátt. Síðan hefir herra Gunnar I. verið í útlegð fyrir norðan land eins og Grettir Ásmundarson forðum.

En nú bersat góðar fréttir af þvi að bæjarstjórnin í Kópavogi ætli sér að sjúga allt gúmmíkurl uppúr íþróttavöllum bæjarins svo að blessuð börnin í bænum verði ekki kurlinu atarna að bráð og dagi upp sem veiklaðar fuglahræður öðrum landsmönnum að aðhlátursefni. Það verður eflaust sjón að sjá Manna sveitarstjóra og hin gægsnin í bæjarstjórninni húkandi á hækjum sér við að tína upp gúmmíkurl. Það verður aldrei barn í brók. Svo rennur bæjarstjórnin á rassinn með allt saman eins og vanalega og einhenda sér í að samþykkja eitthvað annað sem aldrei kemst í framkvæmd.

gu4Gott fólk hefir lengi haft áhyggjur af bæjarstjórninni í Kópavogi, en nú eru eiginlega allir orðnir úrkula vonar um að stjórnarnefna þessi hafi sig nokkurn tíma uppúr þeirri rotþró sem hún hefir dvalið í um árabil. Á sama tíma situr gamli borgarstjórinn, Gunnar I. Birgisson, blýfastur í snjóskafli í einhverjum mesta útkjálkaörreytisrassi sem finnst fyrir norðan land. Jafnvel Grettir Ásmundarson var í þjóbraut útí Drangey miðað við þann óskaplega útnára. Eina von Kópavogsbúa er að Gunnar I. losni með vorinu úr skaflinum og komi suður og taki til í Kópavogi; hann muni þá væntanlega byrja á að sópa gúmmíkurlinu ásamt með gjörvallri bæjarstjórninni uppá vörubíl og sturta öllum þeim hroða beint í eldsofninn í Sorpu.


mbl.is Dekkjakurlið burt úr Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Gunnar I. Birgisson er nú alveg hættulaus í stóra sannleiks-samhenginu.

Allavega í samanburði við lækninn myndbirta á síðunni þinni, sem var, og er líklega enn, í sama svika VG-flokki og glæpa-landlæknirinn Geir Gunnlaugsson?

Og Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi er í sama flokki og glæpa-landlæknirinn Geir Gunnlaugsson?

Það hefur ekki allt fengið að líta dagsins ljós ennþá, sem landlæknirinn Geir Gunnlaugson hefur á sinni óverjandi svörtu sakaskrá og syndugu samvisku!

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.3.2016 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband