Leita í fréttum mbl.is

Andstyggilegur hugsunarháttur

xd9_1241092.jpgHann er mikill grínari í de la Johnsenstíl hann Elliði litli bæjarstjóri í Eyjum og lætur eins og að eiga eignir í skattaskjólum erlendis sé svipað og að eiga aura inni á bók í íslenskum banka í Vestmannaeyjum. En svona er nú víst hugsunarháttur þeirra sem helgað líf sitt péníngum, péníngagróða, ójafnaðarhyggju og yfirgangi af peníngageðveikistoga. ,,Við sjálfstæðismenn eigum allt og megum allt" er kjörorð dólga af þessu kalíberi.

Hinsvegar má ljóst vera að þjóðin er búin að fá sig fullsadda af traktéringum flokkanna sem kenna sig við sjálfstæði og framsókn og fjölgar þeim röddum ört sem vilja banna þessi samtök með lögum. Að sjálfsögðu á að banna þessi fyrirbæri og reka helstu máttarstólpa þeirra til Jómfrúreyja, því þar telja þessir labbakútar, sem lifa mestan part á arðráni, péníngum sínum best borgið.

Og þó að bæjarstjórinn í Vestmanneyjum telji sig allmikinn mann og urri og gelti eins og tannlaus hvolpur þegar hann heldur að forréttindum auðvaldslýðsins sé ógnað, þá er hætt við að um hann kunni að fara ef hin margslungnu auðvaldssamtök, sem hann sjálfur tilheyrir, verða slegin af. En það getur svo sem auðveldlega gerst - og mun gerast.


mbl.is Elliði játar eignahald á „suðrænni eyju“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Sammála þér Jóhannes.

Jónas Ómar Snorrason, 31.3.2016 kl. 12:53

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þessi tilkynning Elliða er líklega það sem mætti kalla "lélegan brandara" í ljósi alvarlega kringumstæðna.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.3.2016 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband