Leita í fréttum mbl.is

Nú á amma bágt

esbÍ dag á mörg krataskitan bágt, ekki síður en amma Péturs Þríhross hér í eina tíð, sem og ýmsar aðrar yfirstéttarrottur auðvaldsins. Grátbólginn vafrar þess geldi skríll um og harmar að alþýða Bretlands hafi sagt auðvaldsbákninu ESB til Helvítis. En auðvitað er þetta jafngott á bölvuð óhræsin því skulu þau halda áfram að hamast við að grénja úr sér augun, og eistun líka. Já.

Á Íslandi er krataskitugengið gjörsamlega ráðvillt og búið áðí, enda er ESB innlimunardraumurinn farinn endanlega útum læri og maga. Er við búið að hið illvíga krataeðli geri nú loksins hreinlega útaf við marga af þessum vesalingum og þeir velti um koll eins og kartöflupokar hvar sem þeir standa, hvort heldur það er inná haðherbergi hjá sjálfum sér eða úti á víðavangi. Vissulega munu brjóstgóðir menn láta koma búkunum af hinum burtkölluðu skitum fyrir á viðeigandi stöðum þar sem ekki verða of mikil óþrif af þeim, en smithætta mun verða mikil til framtíðar ekki síður en af þeim hræðilega militisbrandi sem lifað getur langtímum saman í mold.

En þar sem auðvaldsbáknið ESB er að trénast upp af tilgerð og subbuskap þá er líklegt að bófaeðli þess leyfi sér að fremja glæpi sína á umbúðalausari hátt en tíðkast hefir um skeið. Þess þarf vart að bíða lengi, að þessi auma auðvaldshjörð efni til styrjalda og stórtækra manndrápa til að hræða alþýðuna frá því að höggva enn meir að rótum auðvaldsþjóðskipulagsins. Það verður þá að fara eins og fara verður meðan fjörbrot hins fallna ójafnaðarþurs ganga yfir.    


mbl.is Vill hunsa þjóðaratkvæðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Arnar Þórisson

Þú lest stöðuna svo kolvitlaust að ég ætla ekki einusinni að reyna að rökræða hana við þig, væri bara tímasóun.

Snorri Arnar Þórisson, 27.6.2016 kl. 12:43

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er skynsamlegt af þér, Snorri, að láta vera að rökræða ,,stöðuna" við mig. Hinsvegar er ég ekki jafn viss um að það væri tímasóun. En, svona okkar á milli sagt, hvaða stöðu átti ég annars að vera að lesa í? Ég kannast nefnilega ekki við að hafa verið að lesa í einhverja stöðu.

Jóhannes Ragnarsson, 27.6.2016 kl. 13:56

3 Smámynd: Snorri Arnar Þórisson

T.d.

"Á Íslandi er krataskitugengið gjörsamlega ráðvillt og búið áðí, enda er ESB innlimunardraumurinn farinn endanlega útum læri og maga. "

Þetta er rangt mat hjá þér. Ætla að pósta status sem ég skrifað á öðrum stað og segja þér að nánast allir voru sammála mér.

En ég ætla ekki að fara rökræða við þig kosti eða galla ESB, við vitum þá ekki ennþá og ég veit að það þýðir ekki.

Bara að benda þér á að Brexit er að breytast í sigur þeirra sem hlyntir eru að skoða ESB.

Og BTW, staðan hefur versnað í UK síðan ég postaði þessum status...

------

BREXIT hefur styrkt trú mína á að Ísland á að hefja viðræður við ESB.

Fyrir það fyrsta þá var allt sem BREXIT sagði lygi og það er að koma í ljós að Bretland mun tapa gríðalega á þessu.

Og svo það að smáríkin Skotland, N-Írar og Gíbraltar ætla að berjast með kjafti og klóm til að halda sig innan ESB og eru reiðubúin að yfirgefa UK.

Skotland lýsa yfir sjálfsstæði og ganga í ESB, N-Írar sameinast Írlandi, Gíbraltar sameinast Spáni.

Afhverju vilja smáríkin sem nú þegar eru í ESB ALLS EKKI yfirgefa ESB?

http://indy100.independent.co.uk/article/8-of-the-most-misleading-promises-of-the-vote-leave-campaign-ranked-in-order-of-preposterousness--WyxD59VO3Nb

Snorri Arnar Þórisson, 27.6.2016 kl. 14:16

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það liggur í augum uppi að krataskiturnar eru gjörsamlega ráðvilltar, það sér hvert barnið. Og tilveruskortur þeirra er átakanlegur. En það mátti alltaf búast við að þetta endaði svona hjá skitunum, vond tré bera vondan ávöxt og drepast brátt af eigin óþrifum. 

En eftir að Bretar sögðu ESB til Helvítis, þá hriktir vitanlega í gjörvöllum auðvaldsheiminum. Það ætti fleirum en mér að finnast furðulegt að sósíaldemókratískir flokkar skuli vera jafn ærðir og raun ber vitni af aðdáun á auðvaldinu, kapítalismanum, og stoðum þess eins og ESB. Þessir furðuflokkar hljóta að vera skipaðir vitleysingum eingöngu eða vitfirringum, nú eða blöndu af einstaklingum með fyrrnefnda karakterkvilla.

Jóhannes Ragnarsson, 27.6.2016 kl. 14:37

5 Smámynd: Snorri Arnar Þórisson

Brexit laug England til helvítis.

Þú væntanlega gengur í fjósagallanum alla daga þar sem við eru nú í EES..

Ættir að birgja þig upp af fl. fjósagöllum, þú verður kannski komin í ESB innan fárra ára...

Snorri Arnar Þórisson, 27.6.2016 kl. 14:53

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Fjósagalla já. En við erum ekki í neinu andskotans ESS, við erum aðilar að EES samningi, sem heilmikil áhöld eru uppi um að hafi gert okkur gott.

Jóhannes Ragnarsson, 27.6.2016 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband