Leita í fréttum mbl.is

Vondur félagsskapur

kol34.jpgSjáum nú til, er ekki nema ein hröpuð framsóknarstjarna farin að kæra velmeinandi fólk fyrir einhvern fjárann sem hún kallar ,,níðskrif." Nú er tækifæri fyrir örykjana að svara stjörnunni að bragði og kæra hana í staðinn fyrir rætinn áburð um að þeir séu bótasvikarar. Annars veit aunginn af hverju Vigdísi framsóknargriðku er svona óánægð með þann félagsskap sem talinn er upp á ,,níðlistanum" um ,,nýrassista." Á listanum eru nefnilega gríðarlega mikilsmetin stórmenni á, mér liggur við að segja, heimsmælikvarða. En fjósakonan alræmda er ekki par ánægð með það og ákveður að færa lögmönnum og dómstólum eitt kátbroslegt verkefni.

Nú er það svo, að rasistar eru bara rasistar, alveg eins og rassistar eru rassistar, og því tómt mál að tala um einhverja ,,nýrasista", það er ekkert nýtt við þann fénað. Þar fyrir utan getur sandkassinn.com ekkert gert við því að nauðsynlegt var í hans tilfelli að nefna Vigdísi Hauks í sömu andrá og Gústaf Níelsar og Jón Magnússon hrl. Má vera að stúlkan sé með í pirrunum útaf kostulegu asnaspörkum Sigmundar flokksformanns Dávíðs í gær og hortugum viðbrögðum andskota hans við þeim. En hvað sem því líður, hefir Vigdís nú gjörst ektakærasta dómstóla, sem hún álítur að geti endurheimt meydóm þeirra Jóns Magg, Gústafs og hennar. Glæsilegra getur það varla orðið.

Títus kóngur í tyrkjahöll tilbiður hundinn og hrossin öll. En rasistarnir ráfa um völl og rífa og tæta sinn fiðraða B.


mbl.is Vigdís kærir níðskrif á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband