Leita í fréttum mbl.is

Furðu dónalegir Bíbirfeðgar mæta andstöðu Þjóðfylkingarinnar

cat2Ef rétt er, að Bíbir sé að slá sér upp með Richie þessum bendir flest til að strákandskotinn sé samkynhneygður þar eð Ritsjí þessi á víst að heita kallmaður. Svo má vera að Bíbir sé á báðum áttum, tækifærissinni í ástarmálum, og hinn versti skúrkur. Í þriðja lagi er hugsanlegt að drengurinn sé lostahrókur af því tagi sem leggst á hvað sem er sem dregur andann.

Verst er þó þegar Bíbir og pápi hans leggja saman í púkkið og fara á gandreið útum allar þorpagrundir, mígandifullir og vitlausir. Og til að bæta gráu ofaná svart þá eru þessir andstyggilegu feðgar væntanlegir til Íslands til að afvegaleiða íslenska æsku með furðu dónalegum tiltektum sínum. 

En sem betur fer eru Íslendingar ekki svo firrtir og útvatnaðir að aunginn þeirra sjái ekki hverskonar spjöll Bíbir og faðir hans geta unnið, fái þeir landvistarleyfi hér. Nú hefir Þjóðfylkingin, sem er einn mildur og gáfaður stjórnmálaflokkur, hafið baráttu gegn hingakomu Bíbers og félaga undir kjörorðinu ,,Burt með Bíbir." Þeir í Þjóðfylkingunni telja sig hafa komist á snoðir um að Bíbirfeðgar séu ekki heilir í andstöðunni gegn Íslam til viðbótar að vera frámunalega drykkfelldir og kvennsamir og hafa því skrifað sérstakann kafla inní stefnuskrá sínum um þessa óþokkalegu náunga.


mbl.is Bieber og Richie að slá sér upp?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband