Leita í fréttum mbl.is

Trumbuslagari veitir Gústavusi róttæka ráðningu

skáti5Svo er að sjá að Waage trumbuslagari hafi veitt Gúsavusi Nílsen þvílíka ráðningu á Bylgjunni í morgun, að ólíklegt má telja að sá síðarnefndi þori nokkurn tíma að láta sjá sig á almannafæri meir. Og vissulega ættu bræður Gústavusar og systur í illyrmishættinum og lágmennskunni, svo sem eins og Jón lögmaður, Magnús Þór, Magga Frikka og Arnthrúður á Sugu að skríða ofaní kjallarana heima hjá sér og halda sig þar svo lengi sem hausinn á þeim er yfrumfullur af andstyggilegum meinlokum og þráhyggju.

Síðar í dag ætla ég að gera mér far um að finna þáttinn þar sem Waage trumbuslagari flengdi Gustavus og njóta þess að hlusta á meistaraverkið. Svo verður að ráðast hvort Gústavus lætur sig hverfa úr augsýn siðaðra manna, eða hvort hann heldur áfram að láta heiðvirða borgara tukta sig til fyrir allra auguum og eyrum eins og heimskan og framhleypinn götustrák, sem sérhæft hefir sig í að pissa úr launsátri á gamlar konur.

Það er sagt að þeir byrji snemma á óknyttunum ólánsmennirnir. Hitt er fáheyrðara að fólk hefji raunarlega óknyttasögu sína þegar það er komið á miðjan aldur og þar yfir. En nú hefir það því miður gerst að giljagaurar, sem orðnir eru afar og langafar, já og langömmur, hafa tekið sig til og gerst nýrassólfar eða jafnvel eitthvar verra og farið að ofsækja múslima og einn meir þá sem vilja taka vel á móti stríðshrjáðu fólki á flótta. Það var til dæmis ákaflega kaldranalegt á að hlýða, þegar lítil ljóshærð telpa, á að giska 9 ára, í gulum kjól og með blóm í hárinu, fór að hæla sér af því að eiga langafa og langömmu, sem ætluðu bráðlega að fara að veiða múslima í dýraboga og sálga þeim. Ég er viss um, Spæta mín stillt og hljóð, að hann Hilter hefði verið stoltur af að eiga slíkan afkomanda.


mbl.is Segir Gústaf Níelsson vera ný-rasista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Mikið er ég hrifinn af því að það er einhver sem að þorir að vera með aðra skoðun en Gunnar Waage og Jóhannes Ragnarsson og þorir að opinbera skoðun sína.

Þöggunar herdeild Góða Gáfaða Fólksins kemur ekki til með að þagga niður í vel hugsandi fólki.

Að vera kallaður rasisti af Góða Gáfaða Fólkinu er mikill heiður og  vel hugsandi fólk ætti að sækjast eftir að fá þennan titil Góða Gáfaða Fólksins.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 28.8.2016 kl. 17:16

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, ég verð víst seint talinn til Góða Gáfaða Fólksins eða samþykktur af því, Jóhann minn. 

Kveðja frá Ólafsvík

Jóhannes Ragnarsson, 28.8.2016 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband