Leita í fréttum mbl.is

Bónusvíkingarnir í tómu jakkafötunum

peningar2Helvíti eru þeir nú miklir bónusvíkingar þessir bankajötnar sem líta út eins og galtóm jakkaföt. Mér er sem ég sjái bónusfrauku í snyrtingu og pökkun í frystihúsi innbyrða önnur eins býsn af bónusum og þessi pappírsvillidýr í og í kringum bankana, fjárfestingasjóðina og kauphöllina. Að vísu fær bónusfraukan í frystihúsinu að borga hluta af launum sínum í lífeyrissjóð svo forstjórinn þar geti ekið um á 40 milljon króna jeppa og tómu jakkafötin gamblað með þessa samskotaaura vinnudýranna.

Annars sanna bónusumsvif eignarhaldsfélags Kaupþings og annarra viðlíka stórtöffara enn og aftur kenninguna um að besta ráðið til að ræna banka sé að eiga bankann sjálfur. En sjálfsagt eru þeir sem úthluta sjálfum sér gríðarlegum peningafúlgum afskaplega duglegir, fyrir nú utan hvað þeir verða stórkostlega hamingjusamir í þessu peningabaði sem þeir skenkja sér. En það þýðir nú víst lítið að rexa og röfla yfir arðráni og auðvaldsósvífni á meðan langflest landsins börn samþykkja kapítalískt þjóskipulag í öllum kosningum sem þeim bjóðast. Okkur væri hollast að grjóthalda kjafti og gleðjast þegar við fréttum af góðum bónusum, þótt okkur finnist þeim dálítið skrýtnir.

Svo ber þess að geta, að Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður hefir þegar innheimt ákveðinn hluta af öllum þessum bónusum útum hvippinn og hvappinn og lagt aurana inná bók Framsóknarflokkinn því það á víst að fara að kjósa. Hið sama hefir og eiginkona hans, frú Ingveldur gjört fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hlutirnir ganga sem sagt sinn vana gang eins og vel smurð maskína og enginn uppáfallandi voði er í sjónmáli, nema ef til vill eitt og eitt Hrun á stöku stað, svona eins og gengur.


mbl.is Bónusgreiðslur Kaupþings samþykktar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband