Leita í fréttum mbl.is

Litla ungfrú Alfredós

kol26Ómögulegt er vita nokkuð með vissu hvaða tilfinningar Lilju Alfredós er til inngöngu Íslands í ESB. Máske hefir hún tiltölulega lítin áhuga á slíkri inngöngu, á hinn bóginn ætti aunginn að undrast þótt jómfrú Alfredós sé á laun gífurlega skotin í ESB og vilji Ísland þar inn þótt það gæti kostað dálitlar sjónhverfingar og svikalodderí. Vér vitum öll, að Framsókn er lítt útreiknanleg samtök og litla ungfrú Alfredós er áreiðanlega hál eins og áll, rétt eins og gamli Alfredó, sem hefir það helst sér til dundurs í ellinni að liggja undir sæng hjá gömlu Framsóknarmaddömunni meðan strákarnir slást í Fjósflórnum fyrir augunum á blessaðri litlu frökeninni.

En litla ungfrúin vill vafalaust her og hersetu á Íslandi, stóran her, gráan fyrir járnum, meiri her og aftur meiri her, því að hermang er henni í blóð borið eftir að hafa lifað í skjóli Sölunefnd varnarliðseigna frá blautu barnsbeini og vaxið upp á kjarngóðu hermangsfóðri. Það má heita býsna hlálegt, að útblásni drengurinn Sigmundur Dávíð, hafi rambað að búðarborðinu í Sölunefndinni til að finna sér ráðherra eftir að meirihluti húskarla gömlu Framsóknarmaddömunnar á þingi höfðu steypt honum af stóli, rétt á meðan hann brá sér suðrað Bessastöðum til að delera. Og nú hefir litla ungfrú Alfredós þann starfa í Fjósinu að stetja gömlu Maddömunni bekken og færa það frá henni afur og hvolfa úr því í pottinn hjá yfirmatreiðslumeistara Fjóssins.

Og eigi skal nokkur maður örvænta um, að draumurinn um ESB-innlimunina sé úti. Litla frökenin væri vís með smeygja okkur þangað inn með slóttugheitum smugálsins, því snotra framsóknardýri. 


mbl.is Þurfti ekki að koma á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband