Leita í fréttum mbl.is

Sigurður sparkar í liggjandi mann

kolb6Það var skelminum Sigurði Inga líkt, að sparka í liggjandi mann, sem aukinheldur er með allt sitt á Wintrishælunum. Og Sigurður Ingi gerir ekkert með þá staðreynd, að það var Sigmundur Dávíð sem leyfði honum að tala. Því verður seint trúað að framsóknarmenn kjósi soleiðis fant fyrir formann hjá sér, umfram kraftaverkadrenginn S. Dávíð. Og hvað með það þótt kraftaverkadrengurinn hafi í bríaríi laumast suðrá Bessastaði í óleyfi til að sprengja ríkisstjórnina útaf því að vondir menn með sjónvarpsmyndavélar hafi komið uppum hann.

Þjóðinni væri fyrir bestu að Sigurður Ingi hætti á þingi og einbeiti sér að því lækna kýrrassa, en veri ekki að þvælast fyrir hinum járnharða vilja foringjans að gera núlíðandi öld að framsóknaröld með spillingarþef Fjóshaugsins mikla alltumkring út útí hvurju skúmaskoti. Og þessa Eygló á náttúrlega að flytja hreppaflutningi yfrí Samfylkinguna og setja hana þar niður í einhverju örreytiskotinu, en í Samfylkingunni eru bara örreytiskot.


mbl.is Sigurður Ingi gagnrýnir Sigmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Nú er Simmi litli mættur aftur. Búið að þagga niður í Hlín og Malín. Búið að blekkja, hóta, kúga og nota flokksfólk til að vinna öll verkin, meðan svokallaður Simmi litli foringi var að jafna sig og sína.

Sumir eru að eigin mati fórnarlömb. En eru einungis fórnarlömb eigin spillingarstjórnunar, blindni og vandræðagangs.

Hvernig á siðblint og bómullarpakkað Simma-fólk að vita um þá staðreynd, að sumir geta ekki einu sinni leitað sér sérfræðiaðstoðar við áföllum, vegna fátæktar og yfirgangs valdstjóranna baksviðs?

þegar dómstólamafíuvarðir bankasýslandi bankakerfisræningjar fara um og ræna og drepa saklaust fólk, með því að ræna það og úthýsa því á kaldan klakann?

Það getur engum dulist, að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er bara mynd á auglýsingaskilti baktjaldavalds Framsóknar-mafíuklíkunnar.

En, það skiptir reyndar engu máli í dómsstóla og réttlætislausu óréttarríki, hverju hver trúir né hvað hver kýs.

Baktjaldavarðanna faldavalds-pyntingaforingjar BAKSTUNGU-HNÍFA-BJÖRNS INGA, sjá um að þagga niður sannleikann, og telja "rétt" upp úr ímynduðum ("heiðarlegum") lýðræðiskjörkössum.

Og fólk sættir sig við það að:

LANDSSTJÓRN ÍSLANDS ER SKIPUÐ TVEIMUR PERSÓNUM?

Þær persónur eru Markús Sigurbjörnsson forseti Hæstaréttar Íslands, og eiginkona hans Björg Thorarensen lagaprófessors-valdamaddaman í Háskóla Íslands.

Til hvers að halda alþingiskosningar á Íslandi?

Það er eins og að ráða fyrst í störfin, og auglýsa þau svo til marklausrar málamyndunar.

Það er Íslenska aðferðin ólöglega á öllum sviðum spillingarsamfélagsins, á bankarænandi þrælaeyjunni Íslandi.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.10.2016 kl. 14:56

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Heyr, heyr, Anna Sigríður.

Jóhannes Ragnarsson, 1.10.2016 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband