Leita í fréttum mbl.is

Jólasveinar ganga um gólf, með helbláan hanakamb á höfði ...

x9byhgg.jpgJá, ,,krefisbreytingarnar" sem Brýgýta kerling og hinir Píratarnir boða eru ósköp og skelfing magrar, grindhoraðar, og breyta í litlu sem engu framgangi hins kapítalíska þjóðskipulags á Íslandi. Þetta vita þeir á Washington Post og nota tækifærið til að hæðast að Brýgýtu með því láta hana gaspra um að hún sé Bernie Sanders Íslands. Mér skilst þó, að Bernie þessi sé einhverskonar sósíalisti og að hann kalli sig jafnvel sjálfur sósíalista, en Brýgýta er aunginn sóíalisti og þar með fellur gaspur hennar um sjálft sig. En kerlíngargreyinu þykir fjarska notalegt að láta á sér bera og trana sér fram í fjölmiðlum þó svo að innistæðan til slíkra hluta sé rýr.

paunkGóður kunningi minn sagði við mig um daginn, að honum finnist Pírataflokkurinn minna sig, með degi hverjum, æ meir á dauflega pönkarasamkomu á Hallærisplaninu í gamla daga; málflutningur Pírata sverja sig í ætt við drykkjuhjal sperrileggja með grænan eða helbláan hanakamb og raunir stelpugelgjunnar á ,,demansgrænu buxunum" sem kemur allmjög við sögu í ljóði Megasar um krókódílamanninn. Enda er hærigrautur af þjóðaratkvæðagreiðslum, ESB blæti sem reynt er að fela, ásamt stjórnarskrármali ekki beinlínis aðlaðandi blanda þegar sagt er pass á flest öll önnur mál sem heyra stjórnmálum til.

nak1_1245371.jpgNei, Píratar stefna ekki að grundvallarbreytingum á þjóðskipulaginu, þeirra ,,kerfisbreytingar" rúmast allar, vel og vandlega, innan kapítalíska þjóðskipulagsins, að því leyti er Pírataflokkurinn hreinn og klár tækifærissinnaður íhaldsflokkur. En það gæti þó á vissan hátt orðið fróðlegt, að ég segi ekki skemmtilegt, ef Píratar lenda í ríkisstjórn með einhverjum öðrum flokkum, skiftir ekki máli hverjir það verða, því þá kemur í ljós úr hverju nýju fötin keisarans eru gerð.  


mbl.is „Treystum þjóðinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Jóhannes, geta nýju fötin virkilega orðið veri en þau gömlu. Þó þau reynist engin held ég að þau geti varla orðið verri.

Steindór Sigurðsson, 22.10.2016 kl. 11:52

2 Smámynd: Aztec

Ég tel alveg öruggt mál, að þegar meirihluti ESB-flokkanna fimm, Pírata, VG, Samfós, BF og Viðreisnar mynda ríkisstjórn saman, mun bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB vera það sem mun fá lægstan forgang hjá þeim. Ríkisstjórnin mun einfaldlega halda áfram með aðlögunarviðræðurnar eins og ekkert sé og afhenda sambandinu fiskimiðin á silfurfati, enda enda engir fullveldissinnar eins og Jón Bjarnason til að verja hagsmuni þjóðarinnar.

Birgitta meinar ekkert með að láta þjóðina ákveða. Með quislinga í ríkisstjórn og quisling á Bessastöðum mun aðildin sigla í gegn á kjörtímabilinu og þjóðin mun ekki vera spurð fyrr en allt er orðið um seinan.

Við eigum þeim sem kusu Brexit þakkir skildar, því að nú kemur í ljós, að það verður virkilega erfitt að losa Bretland úr blóðugum klóm sambandsins. Svo að nú er ljóst að allir þeir íslenzku ESB-sinnar sem staðhæfðu fyrir nokkrum árum, að það væri ekkert mál að draga Ísland aftur úr ESB eftir aðild, voru að ljúga. Við vissum það þá, en nú er búið að sanna, að þetta var helber lygi í þeim.

Annars er skemmtilegt, að Birgitta skyldi álpast til að segja að Íslend­ing­ar verði að forðast að gera þau mis­tök sem gerð voru í Bretlandi í aðdrag­anda þjóðar­at­kvæðagreiðslu um Brex­it. „Þú verður að tryggja að bar­átt­an sé upp­lýst. Fólk þarf að vita hvað felst í aðild.“, því að það er vitað mál að það voru einmitt þeir sem vildu vera áfram í ESB, sem lugu í aðdragandanum og eru enn að því, m.a. þingmenn Verkamannaflokksins og bankastjóri enska seðlabankans (Bank of England). Enda hefur þetta illa upplýsta lið skipt um nafn í munni meirihlutans frá Remainers áður í Remoaners nú, því að þessir taparar vilja alls ekki sætta sig við niðurstöðuna og eru sífellt að krefjast nýrrar atkvæðagreiðslu. Theresa May veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga, því að hún vill hvorki tapa fylgi til UKIP né fá ófrið innan Íhaldsflokksins. Hún er eins og Bjarni Ben sem setti sig milli tveggja stóla í ESB-málinu forðum daga og datt á afturendann fyrir vikið. 

Ef það yrði þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi um aðild, og meirihlutinn myndi segja NEI, þá myndi Birgitta og ríkisstjórn hennar (sem mun ekki hafa neina villiketti innanborðs), ekki sætta sig við það, heldur segja við þjóðina: "Reynum aftur, því að betur má ef duga skal".

- Pétur D.

Aztec, 22.10.2016 kl. 12:28

3 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Pétur þetta er kannski allt rétt sem þú ert að segja. En ef ég skil hlutina rétt, þá þurfum við að vera með trúverðugt fjármálakerfi til að komast þarna inn. Þannig að við þurfum ekki að hafa nokkrar áhyggjur af því að vera gjaldgeng í þennan klúbb.

Steindór Sigurðsson, 22.10.2016 kl. 13:21

4 Smámynd: Aztec

Það er einmitt það sem aðlögunarviðræðurnar snúast um, að aðlaga íslenzka fjármálakerfið og ALLT annað að regluverki sambandsins útlistað í Lissabonsáttmálanum. Ný ríkisstjórn vill leggja allt í sölurnar of fórna öllu, vel vitandi að venjulega tekur ferlið venjulega 2-4 ár, svo að þau verða að hafa hraðar hendur ef algjört fullveldisframsal á að nást áður en ný ríkisstjórn tekur við árið 2020. Stefnt er á að setja aðild í algjöran forgang með aðstoð allra tiltækra illmenna, síðan þegar búið er að svíkja þjóðina, verður stefnt að því að uppfylla skilyrðin fyrir upptöku evrunnar. En nú hefur íslenzka krónan styrkzt verulega sl. mánuði gagnvart flestum erlendum gjaldmiðlum, ekki sízt gagnvart evrunni sem hefur hríðfallið ásamt tengdum myntum (t.d. DKK) síðan Brexit.

Í ljósi bætts efnahags sem hefur orðið sl. 3 ár með réttri hagstjórn, eftir kreppuna 2009 - 2013, er engin ástæða til að vilja fara inn í þetta deyjandi samband bara til að fá þennan myllustein sem evran er um hálsinn. Þótt af óskiljanlegum ástæðum Eystrasaltslöndin hafi tekið upp evruna, þá eru leiðtogar Visegrád-landanna fjögurra á öðru máli. Skv. reglum sambandsins eru aðildarríkin skuldbundin til að taka upp evruna, þegar þrjú skilyrði, sem varða fjárlagahalla, myntsveiflur og skuldir hins opinbera hafa verið uppfyllt. Fyrir þessi fjögur ríki er þeim í lófa lagið að haga fjármálum og peningastefnu þannig að skilyrðin uppfyllist aldrei. Þetta var gefið í skyn af pólskum ráðamönnum fyrir mörgum árum. Þeim er meinilla við evruna og meinilla við að taka við skipunum frá Bruxelles. Hvers vegna eru þá frambjóðendur íslenzku ESB-sinnaflokkanna fimm þá svona illa upplýstir og afvegaleiddir?

- Pétur D.

Aztec, 22.10.2016 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband