Leita í fréttum mbl.is

Úr skýrslu starfsnefndar ríkisstjórnarinnar um menntamál

skóli... Höfundar skýrslunnar telja, að með kennaraskorti megi koma í veg fyrir aukna skaðmenntun, sem kostað hefir þjóðarbúið milljarða á milljarða ofan á umliðnum árum. Í staðin fyrir að harma kennaraskort ættu til þess bærir aðilar, að gleðjast og nota þetta tækifæri til að hrifsa allt skólakerfið úr höndum ríkis og sveitarfélaga of einkavæða það með einni vel útfærðri leiftursókn. Það gengur auðvitað ekki, að ríkið, hvað þá sveitarfélög, séu að vasast í skólarekstri sem betur væri kominn í hönum einkaaðila. Það verður að vera frjáls samkeppni í skólarekstri og áfengissölu eins og bankarekstri, útgerð og sælgætisframleiðslu.

Þá er nauðsinlegt að nota kennaraskortinn til að koma börnum og unglingum í arðbæra vinnu, að maður minnist ekki á háskóladundarana, sem er eins alsherjar reginskömm og hneysa fyrir Íslendinga. Í gamla daga voru 13 ára strákar settir um boð í síðutogara og jafnöldrur þeirra látnar salta fisk þar til þær misstu allar nöglurnar af fingrunum, og tánum líka. Þegar fram í sótti urðu þessi börn fyrirmyndarborgarar og lentu á Litla-Hrauni og inni á geðdeild vegna ótæpilegrar áfengis- og dópneyslu. Það varð sko fólk úr þeim krökkum!

Enn fremur er nauðsynlegt, út frá þjóðfélagshag, að lækka laun svo kallaðra kennara um að minnsta kosti 70%, svo að þeir öðlist kosnaðarvitund og láti af því að fylla höfuðin á varnarlausum börnum af einhverjum úrkynjuðum sósíalisma og aumingjadekri. Þegar skólarnir verða orðnir undirdeildir stöndugra fyrirtækja eins og Samherja, Granda, álveranna, Haga og einkarekinna banka verða öll skólavandamál, að meðtalinni skaðmenntun, úr sögunni og hagvöxtur eykst sem því svarar og fólk fer loks að búa við stöðugt góðæri, margfaldaða neyslu og miklu betri bíla.

Virðingarfyllst,
fyrir hönd starfsnefndar ríkisstjórnarinnar um menntamál:
Frú Ingveldur
Kolbeinn Kolbeinsson
Máría Borgargagn
Indriði Handreður
Brynjar Vondalykt
Óli Apaköttur
Sigurveig Dræsa 


mbl.is Starfið þurfi að vera samkeppnishæft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband