Leita í fréttum mbl.is

Og hún spilaði á Ögmund eins og rassrifinn lúður

x8gtfzg.jpgJæja, þá ætlar hin annálaða leiðindaskrudda að hlaupa fram og aftur um Bretland með kjörkassa á sama hátt og hún gerði fyrir Sóleyju Tomm Romm Bomm Bomm í forvalsprófkjörinu hjá VG sællar minningar. Það leikur aunginn vafi á, að Halla sóleyjarogögmundarvinkona mun heilla stórbretann upp úr skónum, enda er hún so klár og heiðarleg. Svo má eflaust satt vel vera, að bretinn hafi aungvann sans fyrir slíkum kvenkosti og setji á hana hundinn þegar hún bankar upp á hjá þeim.

Frú Ingveldur hafði Höllu á sínum tíma í læri og kenndi henni þá fórnfýsi sem fylgir því að smokra sér inn í raðir óvinarins og látast fylgja honum að málum. Eftir námskeiðið hélt nemandinn á vit Vinstrigrænna og spilaði þar á Ögmund og fleiri eins og hún væri að blása í lúður, en Halla er af lúðrastétt sem kunnugt er. Og það er óumdeilanlegt, að flugumennirnir og konunar sem frú Ingveldur þjálfaði og sendi á vettvang Vinstrigrænna rugluðu gangverkið í þeim flokki svo rækilega, að í þessari ,,vinstrihreyfingu" er sósíalismi bannorð, að ekki sé minnst á kommúnisma.

Íllt er þetta allt og bölvað og má stórbretinn þakka sínum sæla ef hann verður svo lánsamur að sjá gegnum þrifasendinguna frá Íslandi í tæka tíð og reka hana af höndum sér. 


mbl.is Vilja auka atvinnuþátttöku kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Ég spái þvi að öfgafemínistaflokkur Höllu fái rétt tæplega 0% atkvæða. Og Halla, leikskólamálin skipta engu máli í Bretlandi, þau mál sem skipta máli eru: Brexit, vandmálin með innflutning islamista til landsins (islams-váin), efnahagsmálin og erfiðleikar NHS. Þessi fjögur atriði eru nátengd. Og Halla mun, eins og allir femínistar, afsaka islamistana sem eru mestu kvennahatarar og misyndismenn sem til eru. Islamistana sem eru að eyðileggja Bretland.

Aztec, 22.4.2017 kl. 21:03

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú skalt ekki vanmeta stórmenni eins og Höllu og frú Ingveldi; þeim varðar ekkert um eitthvert helvítis brexit eða íslam.

Jóhannes Ragnarsson, 22.4.2017 kl. 21:07

3 Smámynd: Aztec

Það er rétt hjá þér. Auðvitað varðar Höllu ekkert um neitt sem skiptir máli eins og Brexit og Islams-váin. Femínistar velta sér bara upp úr tittlingaskít, málum sem engu máli skipta. Líklega fær þessi flokksleysa þeirra Höllu undir tíu atkvæðum.

En auðvitað er hér gullið tækifæri til að óska UKIP góðs gengis í kosningunum. Og vonandi detta LibDem vitleysingarnir af þingi alfarið, enda tekur enginn þá alvarlega. Tim Farron er jú hlátursefni um allan heim.

- Pétur D.

Aztec, 23.4.2017 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband