Leita í fréttum mbl.is

Gjafir eru yður gefnar

ing10Það er ekkert athugavert við að íhaldið í ríkisstjórninni gefi íhaldinu í Garðabæ Vifilstaðaland til að braska með, slík gjörð er samkvæmt sjáfu náttúrunnar eðli og íhaldið í ríkisstjórninni; og íhaldið í Garðabæ eiga allt og mega allt, sem einnig er í kórréttu samræmi við náttúruöflin. Þeir sem skilja ekki þessu sáraeinföldu náttúruvísindi sökum öfundar og ílls innrætis ættu að skríða ofan í öskutunnuna og bíða þess að hreinsunardeildin komi og tæmi þær í sorphreinsunarvagninn. Hitt er svo aftur annað mál, að Auðvalds-Benzi, sem gárungar úr Garðabæ gerðu að fjármálaráðherra, fær ekkert í eigin vasa vegna þessarar gjafar, - að minnsta kosti ekki strax, jafnvel aldrei, en það er auðvitað skítt.

Í sambandi við höfðinglega gjöf ríkisstjórnarinnar hafa heyrst raddir um að bæði Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur hafi haft þar hönd í bagga og hafi verið það einkar ljúft þar eð þeir eru svarnir hatursmenn þess að hélvítis ríkið eigi nokkurn skapaðann hlut; þeirra afstaða til ríkisins er hins vegar að Sjálfstæðisflokkurinn eigi ríkið á sama hátt og hann á Garðabæ og fiskveiðilögsöguna í gegnum útvegsdrengina. Þetta er heilbrigð og skiljanleg afstaða þeirra félaga og að launum fá þeir að fljúga með himinskautum þessi dægrin.

Nú, fyrst Vifilstaðalandið er komið í skjól braskaradeildar Sjálfstæðisflokksins þá getur fólk snúið sér að því að geta sér til um hvaða ríkisbákn Flokkurinn gefur næst og þá hverjum. Frú Ingveldi langar til dæmis fjarskalega til að Sjálfstæðisflokkurinn gefi Kíníkkinni spítala- heilsugæslubáknið og Máría Borgargagn bíður með endurnar í hálsinum eftir að Flokkurinn gefi Hjallastefnunni alla skólakumbaldana. Þær stallsystur eru nefnilega þeirrar skoðunnar að ef ríkið kemur þessu skóla- og heilbrigðisdrasli í höndurnar á góðum einkaaðilum verði mikið skemmtilegra að lifa og lífið verði svo innihaldsríkt og áhyggjulaust. 


mbl.is Vífilsstaðir seldir á sanngjörnu verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Fín myndin af þeim Óla Apaketti og Brynjari Vondulykt tongue-out....

Níels A. Ársælsson., 23.4.2017 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband