Leita í fréttum mbl.is

Róbert var fyrir eitruðum straumum í Vakri

fire.jpgDéskotans ástand er á honum Róberi kallanganum Spenceri. Það hófst víst þegar hann kom til Íslands. Þeir segja að félagaarnir í Vakri hafi haft ill áhrif á kallkjökrið, hann hafi allur eitrast af að umgangast þá og hann hafi ekki komist undir læknis höndur fyrr en skaðinn var skeður. Svona er þetta og útlitið er ekki gott. Þegar Róbert skilaði sé aftur til útlanda eftir íslandsdvölina vildi hann óður og uppvægur gerast múhámeðstrúarmaður og óð eins og hross úr einni moskunni í aðra og heimtaði að fá að ganga í söfnuðinn. Og ímannarnir höfðu ekki undan að varpa honum á dyr og undruðust þrákelknina í Róberti og eru farnir að læsa að sér til að hafa frið fyrir honum.

Það hefir sosem gerst hvað ofan í annað að grandalaust fólk hafi fengið alskonar kvilla af því að umgangast piltana í Vakri og sumir sem voru að sniglast kringum Íslensku Þjóhnappafylkinguna fyrir síðustu kosningar eru nú lokaðir inni á Kleppi því þeir urðu geggjaðir af andrúmsloftinu og straumunum frá forsprökkunum. Til dæmis er einn vistaður í einsmanns klefa inn við Sundin blá af því að hann heldur að hann sé bæði Hitler og Mússólíni og spyr í sífellu hvort ekki sé búið að kynda upp gasofnana.

Hvort Róbert Spencér nær sér aftur eftir gróf kynni sín af félagsskapnum Vakri ennþá óvíst og hofurnar ærið skuggalegar fyrir hans hönd. Af félagsmönnum Vakurs er það aftur á móti að segja, að þeir hafa legið í vellíðunarrúsi eftir heimsókn Róberts og fyrirlestur og eiga í mestu vandræðum með að halda munnvatninu upp í sér og ránhvolfa augunum eins og kríuungar sem hafa étið yfir sig af sandsíli. Nú standa vonir til að víman renni alls ekki af þeim meir og þeirra hlutskipti verði héðan í frá að vera í einu alhitlerísku nirvana. Fyrir þá var heimsókn Róberts hin endanlega lausn og þeir mega varla vera að því að bölva Múhámeð spámanni,Íslam og Muslimum á Facebook.    


mbl.is Sakar íslenskan lækni um dónaskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jóhannes
Þetta er skemmtileg frásögn hérna hjá þér, en það er annað en þessi frásögn hans Róberts, eða : „Hann virtist vilja fá mig til að trúa því að fyrir mér hefði alls ekki verið eitrað." (RÚV)

En fólk hefur margar spurningar varðandi þetta allt saman hjá honum Róbert, svo og varðandi framhaldið í öllum þessum áróðri hans Róberts núna gegn Íslam og gegn Múslimum í erlendum fjölmiðlum.

Kv.       

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 18.5.2017 kl. 01:40

2 Smámynd: Jón Páll Garðarsson

Niðurtúr eftir djamm með Arnþrúði getur tekið á.

Jón Páll Garðarsson, 18.5.2017 kl. 05:39

3 Smámynd: Aztec

Eftir að vinstraliðið laumaði eiturlyfjum í drykk Roberts, einungis af því að hann sagði sannleikann um islam, þá er Ísland orðið illræmt á samfélagsmiðlum. Fólk sem ætlaði að ferðast hingað í staðinn fyrir til meginlands Evrópu, sem múslímar hafa rústað, hættu við þegar þeir fréttu af tilræðinu gegn Robert.

Aztec, 18.5.2017 kl. 17:30

4 Smámynd: Jón Páll Garðarsson

Hvílíkt bull. Hefur komið einhver yfirlýsing frá ferðaskrifstofum um afpantanir?

Jón Páll Garðarsson, 18.5.2017 kl. 17:37

5 Smámynd: Aztec

Ég sagði ekkert um að fólkið hefði keypt miða og afpantað, heldur hætt við að kaupa flugfra hingað. Þetta er það ég hef lesið á samfélagsmiðlum frá fjöldanum öllum af fólki, sem hafa orðið fyrir vonbrigðum vegna þessa atviks og hafa alfarið hætt við að koma hingað til lands. Hætt við að kaupa miða hingað. Skiljanlega. Það hélt nefnilega að Íslendingar væru betri en þetta. En ég efast um að þú farir á þannig síður sem segja sannleikann, Jón Páll.

En það hefur verið mikið skrifað um þetta tilræði á Robert Spencer og vinstraliðinu ekki vandaðar kveðjurnar.

Hér er ein af tugum athugasemda um atvikið og ég er alveg sammála þessu (ekki þýtt á íslenzku):

"Mr. Spencer is well-established as one of THE leading non-aligned qualified experts on islam in the world today. By ‘non-aligned’ I mean that, as a non-muslim, he his not bound to be its advocate or apologist, but is free to speak on the subject as an academic critic, from a standpoint of exceptionally well-informed impartiality. As such, he is simply essentially a seeker after the truth on the subject, no more and no less. So, what is it with the (‘left wing’?) PC establishment in Iceland and on both sides of the Atlantic, with UK authorities, and with the pathetic pair of deluded cretins involved in this little outrage, that they can’t for some reason bear to see this mangy hobby-horse of theirs submitted to intelligent scrutiny and maybe exposed as a worthless destructive fraud? Can’t they find any convincing arguments of their own to negate Mr. Spencer’s arguments? Would this be because they’re not up to it, or possibly that there just aren’t any convincing arguments against Mr. Spencer’s findings and perhaps they realise this? If it’s the latter, why do they continue with a worthless cause? Whatever their problem, are they really so stupid that they don’t realise that attempting to silence criticism – especially well-informed criticism of the quality of Mr. Spencer’s – is only going to throw suspicion back on THEM? Or are they so anaesthetised by their own ignorance or deluded bigotry as to be totally unaware of the consequential conclusions that the wider community might draw? Maybe other peoples’ opinions/reactions simply aren’t of any consequence to these individuals and their ilk; in which case, they are indeed offering a very fitting advert for islam and corroborating Mr. Spencer’s thesis perfectly."

Aztec, 18.5.2017 kl. 21:52

6 Smámynd: Aztec

Staðfesting á því að Robert voru byrluð eiturlyf:

https://www.jihadwatch.org/2017/05/medical-report-published-confirms-that-robert-spencer-was-poisoned-in-iceland

Aztec, 18.5.2017 kl. 22:38

7 Smámynd: Jón Páll Garðarsson

Ætli við höfum ekki yfirlýsingar frá álíka mörgum aðdáendum hans sem ekki ætli að koma eins og frá andstæðingum hans sem vilja koma, þó enginn af þeim hafi ætlað sér hingað né muni koma/ekki koma?
Svo er búið að fjalla mikið um þessa lyfjaskýrslu og niðurstaðan er að hún er ekki sönnun á neinu, en vekur spurningar um hvort hann sé fíkill.

Jón Páll Garðarsson, 19.5.2017 kl. 08:34

8 Smámynd: Aztec

Taktík vinstraliðsins: Alltaf að skella skuldina á fórnarlömb árasa. Alveg eins og múslímar grýta til bana konur sem verða fyrir nauðgun. Sami hugsunarháttur.

Robert Spencer á alla samúð skilið. En þegar þið hafið lokið því að fagna, gætuð þið þurft að hugsa um það hvort hægt sé að drepa sannleikann. Og svarið er nei. Robert Spencer er hugrakkur maður sem á tugi þúsunda aðdáendur og hann lætur ekki hálfdrættinga sem nota ofbeldi til að verja slæman málstað þagga niður í sér.

En á meðan færist Ísland stöðugt nær því að innleiða shariah-lög inn um bakdyrnar þökk sé þöggun af hálfu stjórnvalda og fjölmiðla. En í fyllingu tímans þegar þið neyðist til að klæða dætur ykkar í búrkur, því að múslímarnir heimta það, þá skuluð þið ekki koma kvartandi í mig.

Aztec, 19.5.2017 kl. 11:57

9 Smámynd: Merry

Ég hef aldrei lesið svo mikið bull í lífinu minu. Robert Spencer varð fyrir óskemmtileg reynslu efter einhver eitraði drykk hans- eða heldur fólk að hann er lygari og dopisti. 

Merry, 19.5.2017 kl. 21:12

10 identicon

Sæl Merry, 

Hann Robert Spencer ykkar hefur fyrir löngu misst allan trúveruleika: 

Robert Spencer The stupid terrorists ISIS R not Muslim 1 https://www.youtube.com/watch?v=aD3qEYjG_RY

Robert Spencer The stupid terrorists ISIS R not Muslim 2  https://www.youtube.com/watch?v=0P2tbwle7K4

Robert Spencer lies about Islam Part 4  https://www.youtube.com/watch?v=zdXIuWn2i8o

Robert Spencer lies Qur'aa says kill Jews and Christians Part 5 https://www.youtube.com/watch?v=DHx0Wck3fmk

Robert Spencer lies that Islam is not a peaceful religion Part 6 https://www.youtube.com/watch?v=w2gWuVutfk8

Robert Spencer lies that Islam is not a peaceful religion Part 7 https://www.youtube.com/watch?v=h6EnBhnQVbk

Robert Spencer lies that Islam is not a peaceful religion Part 8 https://www.youtube.com/watch?v=btU5cyuJXAU

Robert Spencer lies that Islam is not a peaceful religion Part 9  https://www.youtube.com/watch?v=RDfLs4tIkt8

Robert Spencer Allah of Islam is fair and just, Jewish Christian God is not Part 10  https://www.youtube.com/watch?v=9pg6BEi-ZNc

Robert Spencer lies that ISIS R Muslim Part 13 https://www.youtube.com/watch?v=Q8XNafYPC94

Robert Spencer lies that Qur'aan says kill Jews and Christians Part 14 https://www.youtube.com/watch?v=bqX4FFwaVsw

Spencer lies that Qur'aan says kill Jews and Christians Part 15 https://www.youtube.com/watch?v=D7X1JL3Ypa8

Robert Spencer lies that Qur'aan says kill Jews and Christians Part 17  https://www.youtube.com/watch?v=SpaFYe8AJCY

Robert Spencer American Army terrorism part 18 https://www.youtube.com/watch?v=huINQs14arQ

Robert Spencer American army soldiers are cowards part 19 https://www.youtube.com/watch?v=LLN5LNilGew

Robert Spencer lies fight jews and Christians again Part 21  https://www.youtube.com/watch?v=9z7M5U2JZqs

Robert Spencer more lies about Muslim Qur'aan part 22  https://www.youtube.com/watch?v=VfcJnV5zAFY

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.5.2017 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband