Leita í fréttum mbl.is

Ámælisvert framferði Sigmundar stofnar ellihrumum í bráðan voða

kolb16_1275588.jpgEkki þarf neinn að undrast fjölmenni á stofnfundi Samfarafélags Sigmundar Dávísðs, því að nafnið eitt kitlar vissar taugar ístöðulítils ævintýrafólks. Þó kemur á óvart, miðað við myndir af fundinum, að slíkur fjöldi af ellihrumu fólki, bókfellsgulu og hvítu, sé þar mættur með stafi sína og göngugrindur. Það að farlama öldungar skul sækja, sem raun ber vitni, í samfarafélag, sýnir að lengi lifir í gömlum glæðum og að enn finnast hetjur á Íslandi sem kunna að meta orgíur að verðleikum.

Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður sendi flugumann sinn á samfarafund Sigmundar. Sá flugumaður er sjálf móðir Kolbeins, Áróra Hekkenfeld, útslitin og fjörgömul. Áróra þókti sosem aldrei eins og fólk er flest og ekki hefir henni skánað með aldrinum. Gamli Kolbeinn lét hana róa fyrir margt löngu; þá var Áróra um sextugt og gamla Kolbeini þókti til skammar að vera þekktur fyrir að halda slíka eiginkonu. En Áróra kerling er ekki öll sem hún er séð, svo stálminnug og athugul sem hún er. Væntir Kolbeinn yngri mikillar skýrslu frá móður sinni er hún snýr aftur úr samfaragildinu.

Aftur á móti er í sjálfu sér ámælisvert af Sigmundi að ginna fjölda aldurhniginna borgara á þennan líka þokkafund, vitandi að gömlu rörin eru svo heilabiluð að þau halda að Sigmudur sé Jónas frá Hriflu og að árið sé 1938 en ekki 2017. Til að mynda sást elliært gamalmenni, sem man ekki neitt eftir sem gerst hefir eftir 1950, skjögra inn í Rúgbrauðsgerðina og kvaðst ætla að heilsa upp á hann Jónas sinn. Þetta er hættulegur leikur hjá Sigmundi, enda býður gömlu Framsóknarmaddömunni við þessu upp á tæki hans. 


mbl.is Fjölmenni á fundi Framfarafélagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband