Leita í fréttum mbl.is

Ill meðferð á skepnum, málvöndunarumræða og róttæk kona

kind1.jpgÞetta mun vera í fyrsta sinn sem ég heyri nýfædd lömb kölluð nýbúa. Mig minnir ég hafi heyrt eða séð erlent fólk sem sest hefir að hér á Íslandi kallaða nýbúa, - en alíslenskan sauðfénað nei. Og varla eru blessuð lömbin ,,nýbúar" af því að þau eru getin og borin í fangelsi innan um fangaverði og sakamenn, sem sumir hvurjir vóru líka bankamenn og fóru í steininn fyrir hroðaleg efnahagsbrot. Ekki hefi ég trú á að lömbum sé hollt að fæðast og alast fyrstu daga lífs síns upp meðal bankaræningja; ketið af slíkum dilkum verður sjálfsagt óætt í haust þegar efnahagsbrotamennirnir taka þá af lífi með kindabyssu og flatningshnífi.

Og fyrst umræðan er komin út í einkennilega orðnotkun og málfræði í skugga fangelsismúra er ekki úr vegi að nefna klénan framburð útvarpsþuls í hádeginu á orðinu leikskóli. Hvað ofan í annað klæmdist þulurinn á þessu orði, sagði leiggskóli, leiggskóli ...
Þessi þularskömm segir þá líklega leigghúss og leiggari, leiggmaður og það er leiggur að læra, eða jafnvel það er leggur að læra. Í það gömlu góðu daga var til siðs að þvo trantinn á sona kauðum að innan með bursta og grænsápu ef þeir gerðust sekir um munnsöfnuð af þessu tagi. Hálftalandi amlóðar eiga að fá sér vinnu uppi á fjöllum fjarri mannabyggðum en ekki á útavrps- eða sjónvarpsstöð.

Frú Ingveldur sem er sönn málverndunarkona sló ókunnuga konu niður úti í búð um daginn af því að konugarmur þessi sagði lívvvírissjóður í staðinn fyrir lífeyrissjóður. Og þegar börn konunnur brustu í grát yfir móður sinni liggjandi á búðargólfinu greip frú Ingveldur í hárið á þeim og sló þeim utan í búðarrekkann þar sem kexið er haft á boðstólum. Enginn þorði að ýfast nokkuð við frú Ingveldi og verslunarstjórinn kom hlaupandi og hældi henni fyrir afrekið. Um kvöldið birtist maður slegnu konunnar fyrir framan útidyrnar að heimili frú Ingveldar og Kolbeins. Hann var drukkinn. Þann mann sló frú Ingveldur líka og dró hann síðan í öngviti út að göturæsinu.  


mbl.is Loðnir nýbúar á Kvíabryggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Reykja sitt kjöt sjálfir?

Ég hélt þegar ég var að lesa fréttina, að nú væri verið að fræða okkur um að þeir reyktu sitt gras sjálfir og hjálparlaust.

En það var bara talað um reykt kjöt í fréttinni, en ekki reykt gras.

Annars held ég að fangar almennt séu að mörgu leyti bara heilbrigðari og skaðlausari sálir, heldur en lögmannaklíka illra valdafla. Valdalögmannaklíkan sem kemur oftar en ekki saklausu fólki í fangelsi, til að sitja inni fyrir syndir hvítflibbaspilltra dómarasamfélagsins afgreiðslustjóra.

Ef við ætlum að vera með réttarkerfi á Íslandi, þá verður það réttarkerfi að vera jafn réttlátt fyrir alla samfélagsins borgara.

Betrunarvist á að vera byggð á réttlátum dómum og vera raunveruleg betrunarvist, en ekki skemmandi fangavist. Sama hvort um ráðherra eða róna er að ræða. Eða hver er annars tilgangur fangelsisvistunar?

Og hver er betrunartilgangur "heilbrigðiskerfisins" á Íslandi, sem afneitar því að stórum hluta til að hjálpa sjúkum föngum? Bæði fyrir og eftir fangavist kerfisins svikinna einstaklinga?

Heilbrigðis-svikakerfis-forstjóramafían afneitar þessu sjúka fólki, og sendir bara sjúka einstaklinga á skottulækna klíkustofnunina Vog í frítt fæði og húsnæði í einhverjar vikur. Og án nokkurrar læknisfræðilegrar greiningarvinnu og raunverulegrar heilbrigðishjálpar. Og svo beint út á sömu götuna og áður, í söluinnbrotaþrælavinnuna með svartamarkaðs hvítflibbanna græna gullið!

Fangar eru nauðsynlegir gullmolar valdníðslu lögfræðidómstóla hvítflibbanna á toppnum. Fangar eru látnir sitja inni fyrir hvítflibbanna spillingarinnar glæpi! Og eiga sér ekki nokkra réttarverndarmöguleika í spillingardómstóla eyríkinu Íslandi?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.6.2017 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband