Leita í fréttum mbl.is

Öðruvísi hinsegin gleðiganga

drauÓnei, Pollíanus Ósckaríot ætlar ekki að ganga til gleði á næstunni, hann ætlar að geyma það þangað til febrúar 2020. Í millitíðinni mun hann ganga til góðs fyrir samtök útgerðarmanna, hvað sem það á að þýða. Og so mun hann vitanlega ganga sig upp að knjám þegar það á við. Hinsvegar mun söngvarinn Gylfi Viðar Ægisson veða í essinu sínu á Hinsegin dögum, syngja tralla og útbýta typpatyggjói á bæði borð og félagar hans í Ízlenzku Þjóhnappafylkingunni/Fokki Fólsis munu aðstoða hann. 

Og af því minnst hefir verið á síra Baldvin fyrr í kvöld, þá er rétt að geta þess að þeim mikla Drotins þénara er fremur í nöp við Hinsegin daga; finnur þeim raunar allt til foráttu og verður þá furðu stórtenntur í talsmáta, bregður jafnvel fyrir sig latínu og grísku þegar Hinsegin daga ber á góma. Svo gerðist það í hitteðfyrra eða árið þar á undan, að óþokkar sendu síra Baldvini boðskort á Hinsegin daga og hann beðinn um taka dragbúninginn með sér. Þá varð hinn merki kennimaður æfur af íllsku og bað Guð sinn að lauma því að Fjandanum að senda Gylfa Ægis og Þjóhnöppunga á aðstandendur Hinsegin daga. Og Andskotinn lét ekki segja sér tvisvar að ræsa Gylfa og félaga út til að gera sprell. Nú hafa hlutirnir æxlast á þá leið að Pollíanus er hættur gleðigöngum en annar söngvari, aungvu síðri, tekinn við keflinu, sem sé fyrrnefndur Gylfi Ægis.

Núnú, í ár verður það Ízlenzka Þjóhnappafylkingin/Fokk Fólsins sem hedur uppi stuðinu í gleðigöngunni og mun það hressa fólk (eða ölluheldur fól)klæðast sínu fegursta pússi, blása á hljóðpípur og lesa ritningargreinar úr Mein Kamfp. Við sjáum öll þennan dýrðlega söfnuð fyrir hugskotsjónum okkar verða hinsegin og aftur hinsegin, úthverfan og í gegnum sig. Það verður trúlega gaman. Pramm pramm, áfram gakk ...


mbl.is Páll Óskar ekki í Gleðigöngunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband