Leita í fréttum mbl.is

Það hafa þau líka alltaf vitað

auð1Það einkennilegasta við þetta styrkjasukk Viðreisnarauðvaldsins er að til sé fólk sem er reiðubúið að fleygja stórum fúlgum í þetta skítafyrirbæri. Að vísu verður að taka tillit til að Viðreisn er stofnuð af gráðugum bröskurum og því að vissu leyti skiljanlegt braskarar opni pyngjur sínar og ausi af hendi í sona sorpþró, ef vera skyldi að æðar brasklíkamans víkkuðu við fórnina. Nú, kjósendasmánirnar keyptu Viðreisn án þess að vita hvað þær voru að kaupa og braskararnir fengu sína braskarastjórn; Sjálfstæðisflokkinn þríeinan eins og guðdóminn. Nú vill enginn kannast við að hafa kosið Viðreisn eða Bjarta framtíð og þegar kjósandi fyrrgreindra flokka er inntur eftir ráðslagi sínu á kjördag grettir hann sig og bara hlær eins og Gutti í Guttavísunum.

búr1Þó segja sjórnmálafræðingar, að ekki sé öll nótt úti fyrir Banza og Viðreisn. Fyrir nokkrum dögum bárust fréttir um að Björn nokkur Valur væri á útleið hjá VG og væri ferðinni heitið í faðm Viðreisnar. Líklegt verður að telja að braskarar hafi orðið að reiða af höndum allháa upphæð péninga til Steingríms J. og VG fyrir að fá leikaramanninn til Viðreisnar, en sem kunnugt er hefir Björn Valur verið orðlögð fyrirtaksbúrtík Steingríms og þeirra sem næst honum standa. Og hvur veit nema Steingrímur og Álfheiður, ásamt Svavarfjölskyldunni, selji sig líka til Viðreisnar; en um Steingrím og það fólk og Viðreisn má segja að skylt er skeggið hökunni og auðvaldseðlið er samt við sig burtséð frá mismunandi merkimiðum á því.

saudnaut.jpgSæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson draga aungva dul á að þau hafi lokið upp fjárhirslu sinni og styrkt Viðreisn, enda hafi þau líka borið pénínga á Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn, Bjarta framtíð, Flokk Fólksins (Fokk fólsins), Ízlensku Þjóðfylkinguna, VG og Samfylkinguna, að ógleymdum Pírötum, sem þau segja að sé hinn ágætasti frjálshyggjuflokkur og tryggur grunngildum kapítalismans. Ástæðuna fyrir örlæti sínu við alla þessa flokka segja sæmdarhjóna vera þá að þeir séu í grundvallaratriðum kapítalískir og hjá þeim öllum sé að finna framúrskarandi auðvaldsseggi, sem skirrist ekki við að selja ömmu sína fyrir fáeina silfurskildinga fái þeir tilboð þar að lútandi. Frú Ingveldur og Kolbeinn eru vitanlega þess mjög fýsandi að fyrrgreindir flokkar verði sameinaðir undir eitt merki; það væri náttúrlega hagræðing, um það væri ekki deilt, en líka skilvirkara og losaði aðila málsins undan leikaraskap og flími sem væri því samfara að halda auðvaldinu úti í mörgum flokkum undir mismunandi felulitum. Ein þjóð, einn flokkur, einn foringi, væri svarið við vanda þjóðfélagsins, en það segjast sæmdarhjónin líka alltaf hafa vitað.     


mbl.is „Viljum hafa allt uppi á borðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband