Leita í fréttum mbl.is

Og er það mannval á köflum svo skuggalegt að ...

fool1.jpgSjálfsagt er gott og blessað að níu flokkar nái mönnum inn á Alþingi ef ekki væri sú brotalöm á að flestir þessara níu sem nefndir eru til leiks eiga sáralítið sem ekkert erindi á þing. Nærtækast er er að nefna ruslflokka eins og Viðreisn, Bjarta framtíð og þennan Miðflokk, sem er nýasta afbrigði stjónmálalegra spillingar á Íslandi, sem sérlega óglæsilega fulltrúa erindislausra apakatta. Sóðasamtökin Sjálfstæðisflokk, Framsókn og Flokk fólksins á sjálfsögðu fortakslaust að banna, en sá síðast taldir er sem kunnugt er óhugnanlegt bergmál frá Þýskalandi fjórða áratugs síðustu aldar og vér Íslendingar síðast af öllu á slíkum draugagang að halda. Þá eru eftir þrír flokkar: VG, Samfylking og Píratar, sem eiga það sameiginlegt að meina lítið með því sem þeir segjast standa fyrir, eru óljósir og óskýrir í hugsun og furðu oft kjánalegir í framsögn; þeir eru sem maður segir ,,flokkar á fölskum forsendum og með sundurslitnar rætur."

Þegar alls sem að framansögðu er sagt, þá gæti þjóðin auðveldlega komist af án allra þeirra níu flokka sem nefdir eru sem kandídatar til þings. Ofan í kaupið bætist svo, að umræddir flokkar tefla undantekningarlaust fram álitlegri kássu af lukkuriddurum, spjátrungum og leiðindaskepnum, sem úrkynjuð flokkeigandafélög flokkana hafa lagt blessun sína yfir, á listum sínum, og er það mannval á köflum svo skuggalegt að mann rekur hreinlega í rogastans.

Þetta fráhrindandi ástand stjórnmálanna á Íslandi, sem ég leyfi mér að kalla lágkúrulega úrkynjun sem aðeins á eftir að versna ef ekkert breytist, mun ekki láta undan síg fyrr en tekist hefur að koma á laggirnar raunverulegum og öflugum sósíalistaflokki. Það er alveg ljóst að lukkudýr og uppskafningarnir í VG, ásamt Gunnarsstaðargrýlu frá Langanesi, mynda ekki vinstristjórn með samskonar fénaði Samfylkingar og kannabistotturum Pírata; sú ríkisstjórn, ef af verður, mun verða hefðbundin, klígjulegur hægribastarður með fáeinar afkáralegar sérþarfir eins og flestar fyrri stjórnir Íslands frá stofnun lýðveldisins. - Nú, ef VG kýs að ganga til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn,má með sanni segja, að VG hafi látið verða af því að ,,skríða ofan í öskutunnuna afturábak með lafandi tungu", svo notuð séu orð skáldsins Magnúsar Þórs.   


mbl.is Níu flokkar gætu náð inn á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Hvaða flokk lýst best á? Eða eru þeir allir algjörlega vonlausir?

Kristbjörn Árnason, 5.10.2017 kl. 23:52

2 Smámynd: Aztec

Er það rétt, Jóhannes, að Alþýðufylkingin ætli bara að bjóða fram í Norð-Austurkjördæmi og á höfuðborgarsvæðinu? Hvað eiga Ólafsvíkingar þá að taka til bragðs? Hver verður þeirra maður?

Aztec, 7.10.2017 kl. 00:36

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki vil ég segja að þeir séu allir algjörlega vonlausir, svona fyrir sinn hatt. En af þessum níu flokkum, sem eiga möguleika, samkvæmt skoðannakönnunum, á að fá kjörna þingfulltrúa, þá líst mér ekki almennilega á neinn þeirra. Þannig er nú það.

Það er rétt, Aztec, að Alþýðufylkingin hyggur aðeins á framboð í þeim kjördæmum sem þú nefnir. Því miður. Sá ágæti flokkur hefur ekki náð neinni fótfestu enn sem komið er þrátt fyrir að vera mun álitlegri kostur en þessir níu sem ég nefni hér að ofan. Hvað ég geri á kjördag er enn óráðið. Að vísu liggja mínar rætur til VG, en ég var einn þeirra sem kom að stofnun þess flokks. En satt best að segja hefir sá flokkur valdið mér miklum vonbrigðum og varla þess verður að hann fái mitt atkvæði.

Jóhannes Ragnarsson, 7.10.2017 kl. 07:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband