Leita í fréttum mbl.is

Krataeðlið er viðbjóðslegur sjúkdómur.

Það er nú orðið ljóst að Samfylkingin er fyrst og fremst hinn hægrisinnaði Alþýðuflokkur endurborinn. Þessi óhönduglega flokksnefna er auðsjáanlega haldin hinu fræga íslenska krataeðli, sem er öldungis óalandi og óferjandi af hálfu alls vitiborins fólks. Sjálfstæðimenn, auðvald, íhald og ný-frjálshyggjudrasl kunna aftur á móti að meta undirlægjuhátt krataeðlisins og spila á það. Það er því ekki ólíklegt að auðvaldsvillidýrin notfæri sér ástandið þegar þau verða vör við krataeðlissjúkleika litla krataráðherrans verki. Það er aldeilis ekki ónýt hugsjón, falleg og þjóðholl að viðra skoðanir sem miða að því að skerða fullveldi Íslands og eignarhald okkar á eigin auðlindum, en slíkt er sem kunnugt er einkenni, sem og ær og kýr, hins ógeðfellda krataeðlis. Það er kominn tími til að læknavísindin finni upp bóluefni gegn krateðlinu.  
mbl.is Ætlar að endurskoða lög um erlenda fjárfestingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Mér sýnist á þessu bloggi að fleiri þurfi lyf en kratar.

Jón Ingi Cæsarsson, 11.9.2007 kl. 19:26

2 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Greinilegt er að enginn munur er á núverandi ríkistjórn og þeirri fráfarandi nema orðin Framsókn og Samfylking. Báðar fylgja stefnu Jelsín sem gaf þjóðarauðin til Ólígarkana. Okkar stjórn eða réttara sagt stjórn íslensku Ólígarganna, hefur þegar afhent sjálfum sér  fiskinn, bankana og nú stendur til að gleipa heilbrigðiskerfið og orkuna.

 Sjá hverir skipa nefnd Björgvins:

,,Gert er ráð fyrir að í nefndinni eigi sæti fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna, Seðlabankans, ráðuneyta utanríkis-, iðnaðar- og sjávarútvegs, Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífsins."

Rúnar Sveinbjörnsson, 11.9.2007 kl. 21:47

3 Smámynd: Þórbergur Torfason

Rúnar það er talsverður munur á. Jóhanna er í ríkisstjórninni núna en ekki hinni fyrri. Þetta spjall hans Björgvins í fréttunum í kvöd um að koma erlendu fjármagni inn í íslenskt atvinnulíf er eitthvað sem kemur ekkert á óvart.

Nú er svo komið að stærstu kvótahafarnir geta ekki stækkað mikið meira vegna kvótaþaks sem bundið er í lögum. Kvótinn er orðinn geisilega dýr og í honum bundið mikið lánsfjármagn sem erfitt er að velta á undan sér. Mín hræðsla snýst mest um það að hafinn sé öflugur undirbúningur að því að LÍÚ kasti þeirri skipun inn á einhvern ríkisstjórnarfundinn að núna skuli opna fyrir erlent fjármagn í íslenskan sjávarútveg svo hægt sé að standa í skilum á 350-400 milljarða skuld þessarar greinar.

Þórbergur Torfason, 11.9.2007 kl. 23:27

4 Smámynd: Fríða Eyland

Það er mikið til í þessu nýja stjórnin púkkar uppá rassgatið á auðmönnum hægri vinstri, allt mjálmið um að jafna er löngu flogið útum gluggann.

Botninn tók úr þegar Össi lagði til að rífa valhöll og byggja nýja höll fyrir fyrirmenni  eingöngu.......falskur tónn, minnir mig á King D.

Í tilefni dagsins 9-11 sendi ég þér ræmu hérna er hún

Góðar stundir 

Fríða Eyland, 11.9.2007 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband