Leita í fréttum mbl.is

Það átti að láta hendur skipta í Ráðhúsinu í dag

Ég varð satt að segja fyrir mikilum vonbrigðum með allt það fólk sem mætt var á palla Ráðhúss Reykjavíkur í dag. Ekki vantaði að hafður væri uppi hávaði og gauragangur líkur því sem hafður er um hönd á íþróttakappleikjum og pallafólki tækist að æsa upp til reiðiláta þá geðprúðu sjálfstæðisstúlku Hönnu Birnu sem er að öllu jöfnu víðfrægt stillingarljós og gleðigjafi á hverju heimili þegar hún kemur fram í sjónvarpi og útvarpi.

Ef einhver raunverulegur lífsneisti hefði verið í mótmælendum í Ráðhúsinu og utan þess, hefðu þeir að sjálfsögðu lagt þegar í stað til atlögu við VillaVill, Ólaf F. og þeirra meirhlutafólk og fleygt því öllusaman út í Reykjavíkurtjörn. Og hafi Tjörnin verið ísi lögð í dag, hefði verið hægur vandi að brjóta þar á dulitla vök svo hægt hefði verið að bleyta aðeins í eignunum. Þá tel ég að mótmælendur hefðu átt að fara að dæmi reykvískra verkamanna 1932 og brjóta allt og bramla í fundarsal borgarstjórnar. Slíkar aðgerðir hefðu að sjálfsögðu borið skjótan árangur og komið í veg fyrir fúkka- og subbumeirihluta VillaVill og Láfa Flista í eitt skipti fyrir öll.

En auðvitað var ekki við því að búast að krútt- og kókópuffsæskan sem hélt uppi handboltastemmningu á pöllum Ráðhússins í dag hefði nokkurn urmul að kjarki og þori verkamannanna sem ráku Bæjarstjórn Reykjavíkur á flótta með alvörutiltektum árið 1932. En viðleitni þeirra er samt ágæt útaf fyrir sig og vonandi upphafið að einhverju meiru og beittara. Því er ekki annað hægt að segja en: Áfram krakkar, þið eruð á réttri leið !!! Það skal ganga betur næst !!!


mbl.is Hávær mótmæli í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til upprifjunar:

Ólafur F. í Silfrinu 2. des. 07
Hér er slóð á viðtal við Ólaf F. Magnússon í Silfri Egils 2. desember síðastliðinn:

http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/geyma/olafurf.2007-12-02.wmv


Kristján Þór Júlíusson um nýja meirihlutann í Reykjavík:
http://www.visir.is/article/20080124/FRETTIR01/80124016


Hér er því haldið fram að sjálfstæðismenn hafi lekið upplýsingum um heilbrigðisvottorð

Ólafs F,Magnússonar:

http://eyjan.is/hux/2008/01/22/bjortu-hli%c3%b0arnar/


kv. gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 18:28

2 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Í ljósi þess hve almenn mótmæli eru vanþróuð hér á landi þótti mér þetta nú eiginlega framar vonum. Það hlýtur að vera ömurlegt að taka við undir þessum kringumstæðum og til þess var leikurinn gerður, að koma reiði almennings í Reykjavík til skila inn í ráðhúsið og láta hana dynja á þeim sem eiga hana skilið.

Haraldur Rafn Ingvason, 24.1.2008 kl. 18:32

3 Smámynd: halkatla

tek undir þetta allt nema kaldhæðnina!

halkatla, 24.1.2008 kl. 18:38

4 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Allla veg gott framtak verð ég að segja.  Betra en ekkert.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 24.1.2008 kl. 18:58

5 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

....það verður sennilega smá bið á byltingunni, en það koma tímar...

Georg P Sveinbjörnsson, 24.1.2008 kl. 19:55

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ójá, það koma tímar og koma ráð.

Það góða við jarðhræringarnar í borgarstjórn Reykjavíkur er að almenningur hefur fengið dálítið meiri og áþreifanlegri, ef svo má að orði komast, tilfinningu fyrir óheilindunum, lygunum og skítaskapnum sem viðgengst í pólitíkini.

En byltingin kemst á dagskrá aftur. Það er jafnvíst og á eftir nóttinni kemur dagur - enda fullkomlega órökrétt að álykta annað ... 

Jóhannes Ragnarsson, 24.1.2008 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband