Leita í fréttum mbl.is

Þegar býður þjóðarsómi - björgum Hannesi ohf.

Hannes á horninu Það má heita auðvirðilegt tómstundagaman andlegra fátæklinga að láta um sig spyrjast, að þeir séu að velta sér uppúr smáskítslegum hégóma eins og gengi krónunnar og hrapi hlutabréfa, þegar önnur og hrikalegri vá steðjar að.

Nú liggur fyrir að hlutabréfið í okkar ástsæla ríkisrekna frjálshyggjumanni (Hanez Holmstone ohf.) hefur hrunið svo illilega að gjaldþrot, með ískyggilegum þjóðhagslegum afleiðingum, blasir við. Sem betur fer eru þó til menn sem skynja alvarleika málsins og hafa brugðist við með viðeigandi hætti, en samkvæmt frétt á dv.is er farin af stað fjársöfnun til stuðnings Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í skaðabótamálum sem Jón Ólafsson, vatnsútflytjandi, hefur höfðað gegn honum.

"Markmið söfnunarinnar er að styðja Hannes í erfiðum málaferlum erlendis, þar sem íslenskur auðmaður sækir fast að honum fyrir að hafa nýtt málfrelsi sitt á Íslandi," segir Friðbjörn Orri Ketilsson sem stendur fyrir söfnunninni.

Fjársöfnuninni er ekki síst ætlað að hjálpa Hannesi að greiða 3,1 milljóna króna bætur sem Hæstiréttur gerði honum að greiða Jóni fyrir tjón sem Friðbjörn Orri segir að allir viti að ekkert var.

Í tilkynningu um söfnunina segir að Hannes hafi í gegnum árin "barist af hörku fyrir frjálsu samfélagi í óþökk forsjárhyggjuafla og sameignarsinna." Þeir sem vilja leggja "þessum ötula baráttumanni lið" eru síðan beðnir um að leggja fé inn á bankareikning "sem nokkrir vinir Hannesar hafa opnað í Landsbanka Íslands."

Hjálparbeiðninni lýkur svo með þessum hvatningarorðum: "Sendum þeim sem að Hannesi sækja skýr skilaboð um að þeim muni ekki takast að þagga niður í honum með árásum á fjárhagslega afkomu hans."

Söfnunarreikningur Hannesar í Landsbankanum: 0101 - 05 - 271201. Kennitala: 131083 - 4089.

 


mbl.is Söfnun fyrir Hannes Hólmstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er afskaplega hjartnæmt og von að honum sé vorkennt af vinum sínum.  Enda hefur þessi frjálshyggjupostuli aldrei þegið neitt af ríki eða bæ, hvað þá flokknum sínum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2008 kl. 13:17

2 identicon

Góður...

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 14:12

3 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Jóhannes, mér þætti betra ef þú tekur myndir sem ég er ljosmyndari og eigandi að þér til handargagns hér á blogginu að þú létir mig vita. Ég ætlsta alltaf til þess að ljósmyndara sé einhversstaðar getið ef menn birta opinberlega myndir frá mér. Og lágmark að þú linkir bara á mína mynd á blogginu mínu en afritir hana ekki þegar þess þarf ekki.

Sjá einnig www.myndstef.is

Helgi Jóhann Hauksson, 31.3.2008 kl. 18:14

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Helgi Jóhann, ég biðst afsökunar á að birt myndina af Hannesi, sem þú ert sannarlega eigandi að. Ég get engu um kennt nema mínu eigin athugunarleysi. Eftirleiðis mun ég kanna höfundarrétt að myndum, sem ég hef áhuga á að nota með pistlum mínu á blogginu.

Jóhannes Ragnarsson, 31.3.2008 kl. 19:28

5 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Í sjálfum sér ekkert mál nema þegar mikið fera að bera á þessu þá reynir maður aðeins að hafa skikk á hlutunum

Helgi Jóhann Hauksson, 31.3.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband