Leita í fréttum mbl.is

Hárkolluhopp undir drynjandi öskrum

foolÞað eru aldeilis meiri extra-gárungarnir þessir íslensku evróvíjóngaularar. En það skulu eignirnar vita, að afspyrnu leiðinlegt og lélegt lag batnar ekki hætishót þó gert sé við það fábjánalegt myndband fyrir fábjána.

Þó er óneitanlega dálítið grínaktugt, að aðstandendur Thisismylifehörmungarinnar skuli láta hafa eftir sér, að umrætt myndband, sé það fyndnasta og skemmtilegasta sem Ísland hefur sent frá sér. Ég varð þeirrar hamingju aðnjótandi fyrir nokkrum mínútum að sjá bút úr þessu meistaraverki í sjónvarpinu, en þar mátti sjá einhvern hlunk með hárkollu hoppa eins og hann væri vistmaður á vitlausraspítala undir drynjandi öskrum Regínu Óskar og Friðriks Ómars.

Ja þvílíkt skemmtiefni atarna! 


mbl.is „Fyndnasta og skemmtilegasta Eurovision myndbandið "
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband