Leita í fréttum mbl.is

Samfylkingin láti til skarar skríða á áhrifaríkan hátt

útÞað virðist bæði ljóst og fullreynt, miðað við langvarandi pólitíska óstjórn og nú síðast hraðvaxandi verðbólgu, að Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að gera í bólið sitt með þeim hætti, að enginn ætti að velkjast í vafa lengur um að hann er öldungis óstjórntækur. Það skársta sem hægt er að gera í stöðunni nú væri að slá Sjálfstæðisflokkinn af og senda hann í langa útlegð frá ríkisstjórnarþáttöku og við tæki ríkisstjórn Samfylkingar, VG, Framsóknar og Frjálslyndra fram að næstu kosningum. Það er bara ekki hægt fyrir nokkurn mann, að horfa uppá Sjálfstæðisflokkinn dunda sér við að eyðileggja þjóðfélagið óáreyttan með sóðalegum einkavæðingum, umhverfisspjöllum, nítjándu aldar afturhaldi og ójafnaðarstefnu. Nú er lag fyrir Samfylkinguna að koma frjálshyggjustefnu Íhaldsins fyrir kattarnef á skjótan og skilvirkan hátt sýna þar með í verki, að það fari raunverulegur og hugrakkur jafnaðarmannaflokkur. Ég er viss um að virðing Samfylkingarinnar myndi vaxa verulega með þjóðinni ef hún léti til skarar skríða á þessum tímapunkti og refsaði núverandi samstarfsflokki sínum með þeim hætti sem hann hefur til unnið.  
mbl.is Verðbólga mælist 12,7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Illt er að vera í stjórn með íhaldinu og ómögulegt en hvernig í ósköpunum heldurðu að það sé hægt að vera í samstarfi með VG? Þar virðast flestir halda að við getum lifað á því að tína fjallagrös.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 26.6.2008 kl. 11:35

2 Smámynd: Liberal

Það segir held ég allt sem segja þarf um þefskyn þíns pólitíska nefs að þú kallar á stjórn með Frjálslyndum og Vinstri grænum... og Framsókn!

Kjósendur og frambjóðendur þessara þriggja flokkar eru upp til hópa óþurftargemlingar (svo ég vitni í þig) og myndu í sameiningu leggja í rúst landið og lýðinn, og það á mettíma.  

Sjálfstæðisflokkurinn er slæmur í stjórn, ég viðurkenni það fúslega, en því miður (og þetta er ansi ógnvekjandi tilhugsun) er hann skásti kosturinn.  Vinstri grænir myndu leggja til þjóðnýtingu og skattahækkanir út í hið óendanlega og hrekja ríkissjóð í gjaldþrot.  Afturhvarf til tíma hafta og forræðishyggju, miðaldir íslensks þjóðlífs.  Enginn með snefil af heilafrumum myndi óska sínum versta óvini slíkum örlögum; að sitja uppi með Ögmund og félaga.

Framsókn stendur ekki fyrir neitt.  Eina sem sá flokkur býður upp á er formaður sem hægt er að hlæja að (og einstaka sinnum með).

Frjálslyndir er flokkur rasista og drullumakkara, hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að flokkur geti verið við stjórn landsmála þegar hann sjálfur er oggupínulítill og enn að klofna?

Samfylkingin er hópur vanhæfra kaffihúsakverúlanta sem ekkert kunna og minna geta.  Enginn ráðherra þess flokks er starfi sínu vaxinn eins og sést glögglega á háðuglegum árekstrum Össurar og Þórunnar (bæði vonlausir pólitíkusar og í fullu starfi að þvælast hvort fyrir öðru), eða bjánalegum yfirlýsingum Björgvins G.

Sjálfstæðisflokkurinn er slæmur, en málið er bara að allir hinir flokkarnir eru langtum verri, það vita allir (nema þeir sem hreinlega eru í afneitun... eins og síðuhöfundur að því mér sýnist).

Það sem þarf nú er nýr borgaraflokkur, hreyfing sem stendur vörð um hagsmuni millistéttarinnar, fólksins sem hefur menntað sig og er nettó greiðendur til samneyslunnar.  Við þurfum ekki enn einn flokkinn sem einblínir á undirmálsfólkið og nettó þiggjendur úr samneyslunni (þó slíkt sé gott og blessað).  Við þurfum flokk sem þorir að lækka skatta, þorir að nýta auðlindir landsins, þorir að taka á afætum í íslenska bótakerfinu sem allt í senn hirða af þeim sem eru duglegir og borga sína skatta, og skerða kjör þeirra sem sannanlega þurfa á bótakerfinu að halda.

Það sem við þurfum EKKI er rausið í kommúnistum og öðrum asnakjálkum sem boða stalínískt stjórnkerfi miðstýringar og ríkisforsjár. 

Liberal, 26.6.2008 kl. 13:43

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég held ég sé nú mest sammála Þórhildi.

Ég er auðvitað einn af þessum hræðilegu sjálfstæðismönnum, sem allir eru að tala um.

Auðvitað verðum við sjálfstæðismenn að viðurkenna hagstjórnarmistökin, sem gerð hafa verið undanfarin ár. Vandamálið er að tækin, sem hægt er að beita í ofþenslu eru fá og máttlítil. Það er hins vegar ekki afsökun, því þessum fáu tækjum var ekki beitt af fullum krafti, heldur aðeins einu: stýrivöxtunum. Það hafði svo að verkum að vandræðin urðu enn meiri. Það verður að endurskoða stefnu og markmið Seðlabankans, sem hugsanlega þýðir að vissir menn verða þar að víkja.

Það sem ekki má gleyma er að íslenska þjóðin hefur aldrei haft það betra og síðastliðin 10 ára hafa verið bestu ár þjóðarinnar til þessa. Það var aðeins síðastliðin 2-3 ár, sem byrjað var að gera mistök og þau skrifast ekki alfarið á Sjálfstæðisflokkinn, heldur einnig á Framsókn og síðan hefur Samfylkingin verið við völd í eitt ár.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 26.6.2008 kl. 17:07

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sorry: Þórdísi!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 26.6.2008 kl. 17:08

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það er alveg með ólíkindum hvað fólk getur verið sjáfhverft.

Ég get tekið undir það, fjárhagslega hef ég aldrei haft það betra, enda hef ég lokið baslinu sem fylgir því að hefja búskap, eignast börn og buru,

En ég hef tekið eftir því: Að allt í kring um okkur er fólk sem á í erfiðleikum vegna stétt sinnar og stöðu .

Ég hef tekið eftir því: Að miklu fleiri Íslendingar eru orðnir ríkir, og þegar ég er að tala um ríkir, þá á ég við fólk sem á nóg af peningum. 

Mér býður við þeim hugsunargangi:  Að í lagi sé að borga sumum ofurlaun og öðrum minna en staðfest er að hægt sé að lifa af.

En Jóhannes, ég vil ekki í stjórn með stjórnleysingjum. Það væri verr af stað farið en heima setið að fara núna í stjórn með þeim sem þú taldir upp.  Hinsvegar vona ég að við verðum þeirrar gæfu aðnjótandi að vinstri menn sjái hag sinn í að fylkjast undir eina samfylkingu, fá heiðarlega fræðimenn í að fara með umhverfismál.  Þar treysti ég ekki stjórnmálamönnum né uppþornuðum embettismönnum.

En, Jöfnum kjörin!  Það er númer eitt (ekki þó á kostnað náttúru Íslands)

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.6.2008 kl. 10:52

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég tek heilshugar undir þau sjónarmið, Ingibjörg, að það er með endemum hvað fólk getur verið sjálfhverft. Ég hef líka sterkt á tilfinningunni, að sjálfhverfa, eigingirni, græðgi og frekja hafi sótt mjög í sig veðrið síðustu 10 -20 árin, ásamt innantómum flottræfilshætti, firringu, yfirborðsmennsku og skeytingarleysi. Það er enginn vafi í mínum huga, að þessir neikvæðu, þjóðlífsskemmandi þættir eru skilgetin afkvæmi kapítalisma og nýfrjálshyggju og þar með Sjálfstæðisflokksins, sem því miður hefur fengið að valsa óáreyttur um þjóðfélagið samfellt í 17 ár, ef ég man rétt; það er fyrir löngu komið margfallt meir en nóg af svo góðu.

Um kjaftavaðalinn, hér að ofan í honum Líbéral, þarf varla að fjölyrða. Hans lífsviðhorf er, að allir séu fífl og asnar nema þeir séu Sjálfsæðisflokksmenn. Annars er merkilegt að jafn staffírugur piltur og uppfullur af gagnrýnislausri pabbapólitík skuli ekki þora að skrifa undir nafni, þessháttar framkoma ber gáfum hans og hugrekki ekki beinlínist fagurt vitni. Að jagast við fólk, sem þorir ekki að skríða útúr músarholum sínum nema undir dulnefni, er eins og að þrasa við hvimleitt draugamor, sem á sín óðul milli þilja. Að öðru leyti hvet ég alla að lesa fordómafull kjánaskrif Líbérals sér til skemmtunar og lærdóms.

Að lokum: Ef einhversstaðar ef stjórnleysingja að finna í Íslenskri pólitík, þá eru það frjálshyggjufígúrurnar í Sjálfstæðisflokknum sem ráðið hafa lögum og lofum í þeim flokki um árabil.

Jóhannes Ragnarsson, 27.6.2008 kl. 12:29

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Já, Jóhannes.  Og hverjir hafa leyft þeim að komast upp með það? Það hugsa fleiri eins og þeir en við, gleymdu því ekki.  Og á meðan að bara 11% þjóðarinnar býr við fátækt og 11% við mikla velmegun. þá eru eftir 78% og til þeirra þarf að höfða. 

Það segir sig sjálft að það eru þeir sem peningana hafa, geta í skjóli þeirra náð til unga fólksins.  Sjáið hvernig símafyrirtækin og bankarnir hafa veitt unga fólkið í sitt net og þau börn sem búa við mikið agaleysi og litla sem enga forræðishyggju (það er léttara)  þau eru mörg hver ofurseld þessum þursum.

Vera má að núna þegar harðnar á dalnum að unga fólkið vilji ljá skynseminni eyra, eða bara neyðist til þess.  Hvað með það, þá vitum við það sjálf að ef ekki er hægt að færa hana (skynsemina) í skemmtilegan búning, þá nennir engin að aðhyllast hana til frambúðar.

Ég frábið mér að starfa með Frjálslyndum eða Íslandshreyfingu, fæ illsku í vinstra heðablaðið þegar ég hugsa um það, hvernig borginni er stýrt.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.6.2008 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband