Leita í fréttum mbl.is

Bilaður staur eyðilagði miðvígstöðvarnar

piss4Það kom einusinni fyrir kunningja minn að pissa á svona staur eins og fulli kallinn ók utaní í kvöld á Bústaðaveginum. Það gerðist líka að kvöldlagi þegar kunningi minn var á leiðinni heim til sín. Þetta pissirí hefði aldrei orðið neitt neitt, ef ekki hefði verið eitthvert ólag á rafmagnsdraslinu inní staurnum, sem gerði það að verkum að kunningi minn fékk heljarstraum í sig um leið og hann byrjaði að pissa á staurinn. Skipti og engum togum, að öllu sló út á miðvígstöðvum kunningjans, sem var í sjálfu sér gott, því nokkrum mánuðum áður hafði tekið sig upp óeðli hjá honum, sem átti upptök sín í fyrrnefndum líkamsparti hans. Sem betur fer er ekkert hægt að gera til endurlífgunar þess er aflaga fór þarna við staurinn, en fyrir vikið fór konan frá kunningja mínum og býr nú með akfeitu greppitrýni sem vinnur fyrir sér með kvótabraski og öðru þvíumlíku.
mbl.is Umferðarslys á Bústaðavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

...ja það er margt mannanna bölið Jóhannes og hægt að lenda í öllum fjandanum, alsaklaus..

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 1.9.2008 kl. 20:14

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það má nú með sanni segja, Hafsteinn. En að öllu samanlögðu voru hrakfarir kunningja míns við staurinn af hinu góða þegar upp var staðið því það var farið að örla á einhverju bölvuðu typpaveseni á karlinum þegar hann lenti í þessu.

Jóhannes Ragnarsson, 1.9.2008 kl. 20:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband